veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir andsvarið. Varðandi framtíðarsýn um sjávarútveginn; þetta er einmitt það sem við höfum verið að benda á, að við höfum áhyggjur af því að ef þetta frumvarp nær fram að ganga að óbreyttu muni það hafa veruleg áhrif á framtíðaruppbyggingu í sjávarútvegi. Við erum afar stolt af því hvar við stöndum í íslenskum sjávarútvegi og eins og ég kom inn á í máli mínu áðan, hvert sem ég fer sem þingmaður fyrir Íslands hönd þá tala ég stolt um það hversu mikið við nýtum af fiskinum, hvernig verðmætasköpunin hefur aukist með árunum, hvernig fiskvinnslurnar hafa þróast hér á landi og hvað þetta skiptir miklu máli fyrir byggðir landsins. Við tölum líka um það að þetta skipti sveitarfélögin máli því að heilu sveitarfélögin byggja einmitt tekjur sínar á sjávarútvegi. Við höfum séð að tækninni hefur fleygt fram. Við sjáum það líka að skipunum hefur fleygt fram og við getum verið afar stolt af þróuninni í öllu í tengslum við sjávarútveginn. Það er hins vegar þannig að ef við horfum á heildaráhrifin sem frumvarpið gæti haft — og nú er ég að horfa á minni byggðir þar sem fjölskyldur byggja afkomu sína á sjávarútvegi, a.m.k. annar makinn. Ef hann missir vinnuna er hinn makinn væntanlega líka farinn frá sveitarfélaginu þannig að þetta mun hafa miklu víðtækari áhrif en bara á sjávarútveginn sjálfan, og þá er ég að tala um veiðarnar eða vinnslurnar. Það eru líka afleidd störf í tengslum við þetta og alls staðar þar sem ég hef farið í mínu kjördæmi og um landið og heyrt í fólki þá er samhljómur með öllum þeim sem tengjast sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti; þar eru miklar áhyggjur af frumvarpinu og áhrifunum til framtíðar á sjávarútveginn og byggð um allt land. En ég kem betur inn á það í seinna andsvari.