veiðigjald.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður lét ekki hjá líða í sinni ræðu að nefna einhverja nýja hugmynd um skattlagningu, gat ekki setið á sér með það, enda þingmaður fyrir Framsóknarflokkinn og hlaut að vilja útfæra skattinn með einhverjum öðrum hætti. En það sem ég var kannski meira að velta fyrir mér er hvort menn séu ekki að missa sjónar á því að það er kannski alveg hægt að tvöfalda tekjur ríkissjóðs, a.m.k. auka þær verulega, með miklum vexti í sjávarútvegi til framtíðar. Getur hv. þingmaður fallist á það með mér að menn séu kannski að missa sjónar á þessu tækifæri þegar menn eru svona uppteknir af þessari skattlagningu, alveg sama í hvaða formi hún er? Ég hef áhyggjur af því að þingið sé að missa fókusinn á þetta. Mér fannst ég heyra það í ræðu hv. þingmanns að hún væri að leggja til að það væri einhver hagræðing í því að skilja að vinnslu og veiðar hér á landi. Ef mér misheyrðist þá vil ég biðja hv. þingmann um að leiðrétta það.