veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir að leggja fram þetta mál og þakka þinginu umræðuna sem verið hefur um þetta. Það er auðvitað ekkert vafamál að um þetta eru skiptar skoðanir og hafa svo sem alltaf verið og ekkert óeðlilegt við það. En það er tvennt sem er að mínu mati algjört lykilatriði þegar við förum inn í þessa umræðu. Það er annars vegar sú staðreynd að nytjastofnarnir í hafinu eru sameign íslensku þjóðarinnar og þannig er það bundið í lög. Það er þjóðin sem á fiskinn. Það er enginn annar sem á fiskinn. Þetta er þjóðareign, þetta er þjóðarauðlind. Hitt er síðan það að í lögum um veiðigjald er tiltekið sérstaklega til hvers verið er að leggja slíkt gjald á, hvers vegna það er og hver hugmyndin er á bak við það og hverju það á að standa undir. Það á annars vegar að standa undir því að ríkið fái til baka þann kostnað sem það leggur í alls konar umsýslu við greinina. Það getur verið eftirlit, það geta verið rannsóknir, stjórn fiskveiða, umsjón með fiskveiðum og fleira þar undir. Síðan er það líka, þetta er nú aldeilis lykilatriði líka þegar við erum að ræða þetta mál, að þjóðinni sé tryggð í heild bein og sýnileg hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar. Mér finnst þetta vera mikið grundvallaratriði, að þjóðin sjái hversu háa fjárhæð hún fær á ári hverju frá þeim sem fá afnotarétt af eign þjóðarinnar. Ef við núllum þetta út þá erum við að rústa þó þeirri sátt sem er um sjávarútvegskerfið á Íslandi vegna þess að deilurnar undanfarna áratugi hafa snúist um nákvæmlega þetta. Það vita allir að greinin er arðbær og greinin er góð og greinin skilar verðmætum, hún skapar atvinnu, hún skapar mikil verðmæti fyrir þjóðarbúið. En af því að þetta er sameign íslensku þjóðarinnar þá verður þjóðin að sjá skýrt og skilmerkilega að það sé til gjald sem gefi þjóðinni til baka eitthvað fyrir það að aðrir fái að nýta fiskinn í sjónum. Mér finnst þetta vera algjört grundvallaratriði.
Ég ber virðingu fyrir því þegar menn eru að tala um hér í þessum ræðustól, eins og mikið hefur verið talað um, skattspor greinarinnar eða þá að það eigi að skattleggja greinina með einhverjum öðrum hætti, það sé heppilegra og annað frekar en að gera breytingar á veiðigjaldinu. Þetta finnst mér vera skökk nálgun og alröng, þótt ég beri virðingu fyrir öllu tali um skattspor greinarinnar, vegna þess að þá erum við að slíta í sundur þetta grundvallaratriði, að þjóðin verður að fá að sjá með skýrum, beinum og algerlega gagnsæjum hætti hvað er verið að greiða þjóðinni fyrir réttinn til að veiða eign þessarar sömu þjóðar. Mér finnst þetta vera algjört grundvallaratriði.
Við þekkjum hvernig umræðan um greinina hefur verið í gegnum tíðina. Á sama tíma og við dáumst að þeirri hugkvæmni sem er í fyrirtækjunum og við dáumst að því hversu vel mörg þeirra eru rekin og hve afkoman er góð þá hefur fólki sárnað, miklum meiri hluta þjóðarinnar sárnað að það sé ekki skýrt hversu mikið þjóðin fær fyrir nákvæmlega þetta, að eiga fiskinn og leigja hann í raun og veru út, lána hann út til fyrirtækja sem greiða þá eðlilegt gjald. Mér finnst þetta vera algjört grundvallaratriði í málinu og við eigum ekkert að vera að þvæla þessu saman við almennt skattspor greinarinnar því að þarna verður ekki skilið á milli að mínu mati. Greiningar sýna að þjóðin hefur orðið af umtalsverðum fjármunum undanfarin ár vegna þess að það sem hefur verið lagt til grundvallar útreikningi veiðigjalda hefur verið of lágt. Það hefur ekki verið miðað við markaðsverð og það er það sem er verið að breyta hér.
Mér finnst þetta hugtak, markaðsverð, líka vera algjört grundvallarhugtak þegar við erum að ræða þetta mál. Það er nefnilega þannig að þjóðin fær sín 33%, það er óbreytt, og restin verður í greininni en það á hins vegar að miða við markaðsverð. Af hverju er gott að miða við markaðsverð? Flokkar, sem á tyllidögum tala gjarnan um að markaðurinn sé skilvirk leið til að finna út hvert verð á hlutum eigi að vera, tala einmitt gegn því að það sé heppileg leið í þessu samhengi. Þá erum við í þeirri stöðu að hlutir eins og verðlagning fyrirtækis innan samstæðu á milli veiða og vinnslu eru farnir að segja til um það hversu hátt veiðigjaldið eigi að vera. Það er rangt, miklu verri leið heldur en markaðsvirðið. Það er hægt að taka bara mjög einfalt dæmi til að rökstyðja þetta vegna þess að þetta er í grundvallaratriðum ekkert flóknara en það. Þegar við erum að kaupa húsnæði eru fasteignagjöld. Þau eru ákveðin út frá markaðsverði. Það er ekki hægt að koma með viðskipti á milli, eigum við að segja, foreldra og barns og ætlast til þess að fasteignagjöldin séu ákvörðuð út frá því verði sem er ákveðið í þeim viðskiptum og er kannski fjarri öllu markaðsvirði. Það bara óhjákvæmilega gengur ekki upp. Þetta er ekki langsótt. Þetta er bara algjörlega kjarninn í því sem við erum að tala um.
Síðan er spurningin: Hvernig er hægt að finna út markaðsvirði þegar það liggur kannski ekki fyrir? Það hefur mikið verið talað um Noreg í þessu samhengi hér. Það er auðvitað ekkert skrýtið að það sé verið að tala um Noreg því það er auðvitað verið að miða við það þegar kemur að uppsjávarfiskinum. Þá verðum við auðvitað að hafa í huga að það er talsverður munur á vægi sjávarútvegs í Noregi og vægi sjávarútvegs á Íslandi. Við getum sagt að í Noregi sé olían númer eitt, tvö og þrjú á meðan sjávarútvegurinn skorar hærra hér. En í Noregi er t.d. verið að leggja gjald á olíuna sem er sambærilegt því veiðigjaldi sem er verið að leggja á hér. Og hvað miða Norðmenn við í því, í þeirri grein sem skiptir þá örugglega svipuðu eða meira máli og fiskurinn skiptir okkur hér? Þá er auðvitað verið að miða við heimsmarkaðsverð. Það er vegna þess að Norðmenn hafa komist að því, sem eru auðvitað bara augljós sannindi, og á að vera viðmiðið hér og er í þessu frumvarpi til laga, að það gengur ekki upp að fyrirtækin sjálf ákveði í raun og veru hversu mikið þau greiða. Þess vegna er miðað við þetta markaðsverð sem heimsmarkaðsverðið er. Það er líka hægt að nota þetta til rökstuðnings hreinlega út frá þeim orkusamningum sem er verið að gera. Það er verið að miða við heimsmarkaðsverð á áli en ekki eitthvert eitt verð sem kemur frá einu fyrirtæki, eins ágæt og þau eru. Þetta er bara heilbrigðari mælikvarði þegar verið er að reikna út fyrir svona gjaldtöku. Þess vegna styð ég þetta mál heils hugar.
Auðvitað hafa komið fram athugasemdir, þó það nú væri, við frumvarpsdrögin þegar þau voru í samráðsgátt, eins og alltaf er. Það koma fram fjölmargar athugasemdir, m.a. frá sveitarfélögum, frá fyrirtækjunum og þær koma frá almenningi. Mér hefur fundist í umræðunni fulllítið verið gert úr því að almenningur sé að taka þátt og veita umsagnir um svona mál. Það má líka halda því hér til haga, af því að það hefur talsvert verið talað um umsagnir frá sveitarfélögunum, að það er auðvitað, og það kemur fram í greinargerðinni, verið að mæta mörgum af þeim athugasemdum sem þaðan koma með því að þrepaskipta og breyta frítekjumarkinu, að láta frítekjumarkið grípa sérstaklega lítil og meðalstór fyrirtæki. Greiningar sýna að tíu stærstu fyrirtækin eru að fara að greiða nærri 70% af breyttu veiðigjaldi. 20 stærstu fyrirtækin eru að fara að greiða 84% af þessu breytta veiðigjaldi. Þannig skiptist þetta. Þetta er atriði sem sömuleiðis skiptir alveg gríðarlega miklu máli.
Mig langar líka að nefna hér, af því að mér finnst það eiga erindi í umræðuna, að það sem verið er að leggja fram í greinargerð er bara með svipuðu sniði og hefur verið gert áður í sambærilegum málum. Síðasta ríkisstjórn ætlaði sér t.d. að hækka veiðigjöldin. Oft var nú talað um að það væri nú kannski svigrúm til að hækka þau. Aldrei var það gert, ofur einfaldlega vegna þess að forvígismenn síðustu ríkisstjórnar stóðu ekki í lappirnar þegar gagnrýni kom á að það væri verið að hækka veiðigjöld, gjöldin fyrir afnot af auðlindinni. Auðvitað er það þannig að þeir sem horfa fram á að það sé verið að hækka gjöld skrifa ekki umsögn og segja: Ég fagna þessu alveg í drep, ég styð þetta í botn, viljið þið ekki bara hækka meira? Auðvitað koma menn með athugasemdir og reyna að verja sitt. Það liggur alveg í hlutarins eðli. En í þessu máli er undir þetta grundvallaratriði sem er aukin sanngirni og aukið réttlæti í þessari tilteknu gjaldtöku. Ég fagna því mjög að það skuli vera atvinnuvegaráðherra í Stjórnarráðinu sem hefur bein í nefinu til að leggja þetta mál fyrir þingið þrátt fyrir, eðlilega, að þeir sem eiga að greiða hærri gjöld kunni að vera því mótfallnir. Það er bara eðlilegt og ekki geri ég athugasemd við það að fyrirtækin séu það, svo sannarlega ekki. En þá vísa ég aftur í þessa grunnpunkta sem ég nefndi hérna í upphafi: Þetta er gjaldtaka fyrir afnot af auðlind sem fyrirtækin eiga ekki. Þau eiga hana ekki. Við, þjóðin, eigum þessa auðlind og það er eiginlega aðalatriði hér í þessu. Mér finnst það svolítið skrýtið að þingmenn sem voru hér í ríkisstjórnarsamstarfi síðast og ætluðu að hækka veiðigjöldin og töldu að það væri í lagi og það myndi ekki knésetja útgerðina eða vinnslurnar, það myndi ekki setja landsbyggðina á hliðina — allt í einu núna er það orðið þannig, jafnvel þó að það sé búið að setja miklu skynsamlegri mælikvarða á það hvernig veiðigjaldið er fundið út. Mér finnst ekki alveg fara saman hljóð og mynd í þessu, verð ég að segja.
Við verðum að hafa líka í huga að þegar veiðigjaldið var sett á fyrir rúmum áratug síðan, hver voru viðbrögðin þá? Við munum það alveg. Það var nákvæmlega svipaður málflutningur og við erum að heyra hér í ræðustólnum í dag: Landsbyggðinni blæðir nánast út, fyrirtækin þola þetta ekki, hvorki útgerðin né vinnslan, þetta er gríðarlegt högg fyrir landsbyggðina. Ekki hafa menn haft miklar áhyggjur af því þegar sá umframhagnaður sem verður til í greininni endar yfirleitt sem fjárfesting hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er hins vegar staðreyndin. Engar af þessum hrakspám sem voru hafðar uppi þegar veiðigjaldið var sett á á sínum tíma rættust. Þvert á móti hófst algjört blómaskeið í sjávarútvegi á Íslandi. Auðvitað var samfélagið að ná sér aftur upp úr hruni en hrakspárnar rættust ekki og ég er algerlega sannfærður um að það sama á við nú. Það er ekkert í tölulegum staðreyndum sem segir okkur að fyrirtækin þoli þetta ekki. Þegar við erum með frítekjumarkið eins og það er sett upp í þessu frumvarpi þá er það auðvitað til þess að vernda ákveðna hluti og það er verið að taka tillit til ábendinga sem hafa komið fram við vinnslu málsins og þegar það var lagt fram í samráðsgáttina.
Svo megum við auðvitað ekki gleyma því, sem er líka algjört grundvallaratriði, að núna þegar 1. umræðu lýkur þá fer málið inn í atvinnuveganefnd og þar verða hagaðilar kallaðir fyrir. Þá er auðvitað bara sjálfsagt og eðlilegt mál að nefndin taki vel utan um allar þær ábendingar sem berast, alla þá gagnrýni sem kemur á málið og velti því bara öllu við, jafnvel hvort eitthvað megi betrumbæta. Ég er hins vegar algjörlega sannfærður um það að þessi hækkun á gjöldunum, með þeirri aðferð sem hér er verið að leggja til, mun hafa góð áhrif, ekki síst úti á landi, vegna þess að það á að nota fjármunina að stórum hluta þannig að þeir renni til að mynda í bætta innviði úti á landi. Þá er nú ekki síst verið að tala um samgöngur. Hafa menn sem eru að gagnrýna skort á gögnum í þessu reynt að reikna hversu mikið vægi það hefur fyrir landsbyggðina að það sé verið að bæta í innviði þar? Skorturinn á uppbyggingu á landsbyggðinni í vegakerfi og öðrum innviðum, heilbrigðiskerfi og öðru, er nefnilega hinn eini sanni landsbyggðarskattur. Gjöldin hér, aukningin á einmitt að renna í það að betrumbæta þar og ég held að menn ættu að fagna því.