156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:42]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir hennar innlegg í þessa umræðu. Það er út af fyrir sig rétt að umræðan um sjávarútveg á Íslandi hefur verið mjög hatrömm í gegnum tíðina, hún hefur verið það. En það held ég að helgist nú af því sem ég var að rekja í minni ræðu, að fólk upplifir að fyrirtækin sem fá að veiða fiskinn sem fólkið á greiði ekki nógu mikið fyrir það. Það held ég að sé meginuppspretta allra deilna um sjávarútveginn. Stefna Viðreisnar hefur í gegnum tíðina verið sú að sjávarútvegurinn eigi að greiða meira fyrir afnot af auðlindinni. Þetta hefur verið eitt af kjarnamálum Viðreisnar í gegnum tíðina. Í stefnu flokksins er reyndar ekki verið að fara nákvæmlega þá leið sem farin er í þessu frumvarpi. Við hefðum frekar viljað fara aðra leið þar sem einmitt á að treysta markaðnum betur fyrir því að verðleggja og meta þau verðmæti sem undir eru. En þetta var leiðin og ég er svo sem bara mjög sáttur við að það hafi náðst að fara þessa leið í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. En stefna Viðreisnar og áhersla Viðreisnar og sýn í þessu hefur alltaf verið sú sama. Hvort formaður Viðreisnar eða formenn Viðreisnar í gegnum tíðina hafi talað um eitthvert öfundargen eða ekki — ég ætla ekkert að blanda mér í það. Það má vel vera að einhverjir sjái ofsjónum yfir því og öfundi einhverja menn úti í bæ fyrir það að þeir græði pening. Það geri ég ekki. En mér finnst hins vegar svolítið sárt að þeir sem græða óskaplega mikinn pening á því að veiða fisk sem við öll eigum saman greiði ekki nægilega mikið fyrir þau afnot. Um annað snýst þetta ekki af minni hálfu og af hálfu míns flokks.