156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:46]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa seinni innkomu. Ég ætla að byrja aðeins á að segja það að mér er það ekkert á móti skapi að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar tali um þetta sem skattahækkun. Þeim er frjálst að gera það. Þeir mega tala um auðlindaskatta ef þeir vilja. Ég ætla að tala um þetta sem gjaldahækkun vegna þess að það er munur þar á. Við getum verið ósammála um það. Við höfum auðvitað þá reynslu af ríkisstjórn síðustu ára að það hafa oft verið gefin fögur loforð um að bæta í hér og þar og kannski ekki síst í samgöngum úti á landi en það hefur ekkert endilega verið mikið um efndirnar þannig að ég get vel skilið að hv. þingmaður tortryggi það að fjármunirnir muni renna þangað sem þeir eiga að renna. En þessir flokkar sem mynda þessa ríkisstjórn, við myndum hana m.a. um það að við ætlum að standa við það sem við segjum og þegar við leggjum upp með það að hluti af þessu gjaldi, stór hluti af þessu gjaldi, eigi að renna í samgöngubætur úti á landi þá munum við bara standa við það. (Forseti hringir.) Ég ætla að standa hér í ræðustól þegar það er orðið að veruleika og fagna því mjög, enda er það (Forseti hringir.) auðvitað bara mjög eðlilegt að ráðstafa þeim fjármunum með þeim hætti.