156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:47]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Mig langar að koma í andsvar og reyna að átta mig aðeins betur á hvert grunnmarkmiðið með breytingunum er. Er það bara að láta þá sem veiða fiskinn borga meira? Er það að reyna að fá sem mest í þjóðarbúið fyrir auðlindina í hafinu? Er það að borga þann kostnað sem er við hafrannsóknir og löggæslu og eftirlit og annað á hafinu? Hvert er markmiðið? Og eru veiðigjöldin eini mælikvarðinn á það hvað útgerðin í landinu er að borga til samfélagsins? Er það eini mælikvarðinn? Er einhver annar mælikvarði yfir það í huga hv. þm. Sigmars Guðmundssonar hvað útgerðin í landinu er að leggja til íslensks þjóðarbús?

Hvað varðar afleiðingarnar — hér er mikið rætt um veiðigjaldið, hvað það heitir, hvaða nafni. Er hv. þingmaður sammála mér í því að allar álögur, sama hvaða nafni þær nefnast, geta dregið úr fjárfestingargetu fyrirtækja?