156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:49]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir þessar spurningar. Og það er í raun bara mjög einfalt að svara þessu. Það má alveg segja að markmiðið með þessari breytingu sé að standa undir því sem stendur í 1. gr. laga um veiðigjöld. Veiðigjald er lagt á í þeim tilgangi að mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu og til að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar. Það er þetta seinna atriði sem gjarnan hefur orðið út undan þegar við erum að tala um upphæð gjaldsins. Í raun og veru má segja að markmiðið sé að þessi lagagrein standi almennilega undir sér eins og hún var hugsuð. Ég er sannfærður um að afleiðingin af því að við förum þá leið verður sú að það mun skapast meiri sátt og friður um sjávarútveginn á Íslandi. Ég held að það sé til mikils að vinna að ná fram meiri sátt en hefur ríkt um greinina því að eins og hefur komið fram í ræðum hér í kvöld þá erum við öll stolt af greininni. Það er leiðinlegt að grein sem skilar svona miklu skuli vera bitbein svona deilna út í eitt. En það er vegna þess, eins og ég er búinn að tönnlast á, að þjóðin hefur ekki notið afrakstursins með beinum sýnilegum hætti eins og beinlínis er kveðið á um í lögum um veiðigjald.

Ég árétta það sem ég sagði fyrr í dag: Menn mega kalla þetta skattahækkun ef þeir vilja, mönnum er frjálst að gera það. Þetta er hins vegar auðlindagjald en ekki auðlindaskattur. Það er ágætlega farið yfir það í greinargerð málsins að þetta muni ekki hafa nein veruleg áhrif á fjárfestingargetu eða afkomu greinarinnar sem neinu nemur og það er auðvitað líka vegna þess að upphæðin er reiknuð með þeim hætti sem gert er. Auðvitað hefur þetta allt einhver áhrif en það fer fjarri því að þetta hafi þau áhrif sem hv. þingmenn stjórnarliðsins eru að lýsa hér í hverri ræðunni á fætur annarri.