veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég hugsa að ég geti útnefnt hv. þm. Sigmar Guðmundsson bjartsýnasta þingmanninn fyrir að segja að hægt sé að ná sátt í sjávarútvegi. Það hefur aldrei verið meira deilt um sjávarútveginn eins og eftir að veiðigjöldin voru sett á, þá færðist umræðan úr því hvort þau ættu að vera til yfir í það hvað þau ættu að vera há og hvað væri sanngjarnt og hvað þau ættu að heita og annað slíkt. Ég get alveg tekið undir það með hv. þingmanni að útgerðin geti borgað meira og að þetta þurfi ekkert endilega að hafa svo mikil áhrif á fjárfestingargetuna. En þá hefur þetta einhver önnur áhrif. Íslenskur sjávarútvegur getur auðveldlega borgað miklu meira í skatta, hann getur auðveldlega tryggt fjárfestingarstig sitt en það þarf hann að gera með hagræðingu. Og hvað er hitt orðið yfir hagræðingu í sjávarútvegi? Það er samþjöppun. Eru það þau áhrif sem Viðreisn vill standa fyrir.