veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég skal endurtaka það sem ég sagði áðan. Ég held að þeir sem fara með þær hrakspár sem hér er verið að fara fram með, um að hér verði einhver yfirgengileg samþjöppun eða að verið sé að taka allt blóð úr lífæðum landsbyggðanna; þeir sem halda þessu fram eru í nákvæmlega sömu stöðu og þeir sem héldu fram þeirri hrakspá árið 2012. Það er út af fyrir sig rétt hjá hv. þingmanni að það er ekkert endilega verið að deila um nákvæmlega það sama í dag og var deilt um áður. En deilan núna snýst hins vegar um það að þjóðin upplifir það mjög sterkt að útgerðin eigi að greiða meira fyrir að fá að veiða fiskinn í sjónum. Það eru 6% þjóðarinnar sem telja að það sé ekki svoleiðis, samkvæmt könnun. Það er mér alveg endalaust undrunarefni hve hátt hlutfall af þessum 6% á sæti á Alþingi Íslendinga, í Framsóknarflokknum, í Sjálfstæðisflokknum og í Miðflokknum.