156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:54]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ríkisstjórnin hefur lýst því ítrekað yfir að hækkun veiðigjalds verði mætt með auknum fjárfestingum í samgöngumannvirkjum, einkum vegabótum á landsbyggðinni. Það er sannarlega göfugt og gott markmið en úrbætur á innviðum bæta aldrei tapaðar tekjur einstaklinga og fyrirtækja í byggðum landsins eða rekstrartekjur sveitarfélaga. Betri vegir koma að litlu gagni ef ekki er stöðug atvinna í byggðunum sem þeir liggja til og frá. Þá ber einnig að hafa í huga að þau óbeinu áhrif sem sjávarútvegurinn skapar. Fjöldi fyrirtækja í stoðgreinum, t.d. flutningum, tækniþjónustu og viðhaldi, reiða sig á öfluga starfsemi sjávarútvegs. Þannig styður greinin við rekstrargrundvöll fjölmargra annarra starfa og atvinnuvega. Atvinna er forsenda byggðar og öfugt. Telur hv. þingmaður það réttlátt að vinnslan og verðmætasköpun muni líklegast minnka ef þetta frumvarp nær fram að ganga og þar með renni minni skatttekjur í hlut ríkissjóðs, svo ekki sé minnst á hvernig eigi þá að standa undir öllum samgöngubótunum?