156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:57]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. En ég er í stjórnarandstöðu í dag en ekki hv. þingmaður. Hvergi í frumvarpinu er fjallað um áhrif boðaðra breytinga á einstaka landshluta eða sveitarfélög. Engin greining hefur heldur verið lögð fram á því hvernig þetta muni snerta einstaka byggðarlög. Að leggja upp með jafn víðtækar og íþyngjandi breytingar á gjaldtöku í einum mikilvægasta grunnatvinnuvegi landsins án þess að rýna í áhrifin á atvinnulíf, samfélög og fyrirtæki er með öllu óásættanlegt. Afleidd störf af sjávarútvegi skipta gríðarlegu máli. Ég ætla a.m.k. ekki að standa hér í dag og tala fyrir auknum álögum á atvinnulífið, annað en hv. þingmaður og stjórnarliðar.