Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Geðheilbrigðismálin hafa á undanförnum árum orðið æ sýnilegri í samfélagslegri umræðu. Þjónustan hefur verið að aukast en á sama tíma berast ítrekaðar sögur um skort á úrræðum, biðlista og lokaðar dyr í kerfinu. Hvernig má það vera? Við erum rík á Íslandi. Við eigum mikið af vel menntuðu og hæfu fagfólki sem leggur sig fram á hverjum degi um að vinna með fólki. Við eigum líka fjármagn og innviði sem ættu að koma til móts við þarfir fólks. En við búum líka við flókið kerfi, aðskilið eftir ráðuneytum og málaflokkum milli ríkis og sveitarfélaga sem skilur eftir fólk sem þarf þjónustu en veit ekki hvert það á að leita, passar ekki inn í úrræði eða fellur í sprungur kerfisins. Þetta þarf ekki að vera svona flókið. Við höfum getuna til að koma til móts við auknar kröfur um þjónustu en þá þurfum við líka að skoða fleiri leiðir og nýsköpun í geðheilbrigðisþjónustu. Það er svo margt sem hægt er að gera hratt og örugglega. Þar vil ég nefna eina auðlind sem oft er ekki horft á. Það eru auðlindir sem við eigum í frjálsum félagasamtökum. Hópar hugsjónafólks hafa í gegnum tíðina skapað ný úrræði á Íslandi, oft með einföldum og mannlegum lausnum. Það eru ótal dæmi, Heilsustofnunin í Hveragerði, Reykjalundur, SÁÁ og úrræðin þeirra, starf Rauða krossins, Píeta og já, Bergið. Allt frumkvæði sem hefur orðið að mikilvægri þjónustu. Við höfum tækifæri til að þróa blandaða leið þar sem opinber kerfi og samfélagslegt frumkvæði vinna saman. En fyrst og fremst þurfa kerfin okkar virka, óháð því hver ber ábyrgð, og þau þurfa að setja notandann í forgrunn því þetta snýst bara um það að við tökum ábyrgð á fólkinu okkar, íbúum landsins sem þurfa þjónustu og eiga rétt á henni.
Núverandi ríkisstjórn hefur lýst vilja til að setja geðheilbrigðismálin í forgang. Ég hvet til þess að við vinnum markvisst að skapandi lausnum, bæði innan og utan kerfis. Það er leiðin að betri þjónustu og velsæld fyrir okkur öll.