156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

Störf þingsins.

[13:48]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Það vantar gögn, það vantar greiningar á áhrifum, heyrðist ótal sinnum hér í gær í umræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar vegna leiðréttingar veiðigjalda. Engu að síður er það reyndar þannig að kaflinn um mat á áhrifum frumvarpsins spannar tíu blaðsíður, fullur af tölum, aukastöfum, gögnum, prósentum, línuritum, sundurliðun niður á sveitarfélög og á bak við liggja ótal gögn sem án efa verður hægt að rýna í í atvinnuveganefnd ef áhugi er fyrir hendi. Margir þingmenn virðast reyndar hafa mikla trú á nákvæmni og forspárgildi félagsvísindanna og að með nógu miklum gögnum og nógu mörgum skýrslum sé hægt að spá fyrir um framtíðina með nokkuð góðri vissu. Það er því miður ekki alveg þannig. Það er ekki eins og að spá því hvernig veðrið verði eftir þarnæstu helgi. Þegar kemur að flóknum mörkuðum getum við reynt að finna breiðu strokurnar en jafnvel það getur verið mjög snúið, hvað þá að spá fyrir um hvernig einstaka aðilum á markaði muni vegna. Það er hins vegar aðeins auðveldara að meta áhrif af því kerfi sem við höfum, t.d. að meta hvernig arðinum af auðlindinni hefur verið ráðstafað, hvaða áhrif hagnaður á þessum markaði hefur haft á samþjöppun í íslensku viðskiptalífi. Þá er ágætt að nefna að nýlega var borin upp til atkvæða skýrslubeiðni um eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi. Og hvað sögðu stjórnarandstæðingar þá? Vildu þeir sjá þessi gögn? Vildu þeir fá fram þetta mat á áhrifum núverandi kerfis? Nei, þarna var brotin margra ára saga og margra ára hefð hér í þinginu og Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn greiddu ekki atkvæði með skýrslubeiðninni, töldu þetta ekki vera opinbert málefni, töldu ekki nauðsynlegt að kalla eftir þessum gögnum, töldu ekki nauðsynlegt að fá mat á áhrifum af núverandi fyrirkomulagi. Hvers vegna ekki? Hvers vegna þetta misræmi? Það er þeirra að svara.