Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég vil deila með þingheimi nýlegum lýsingum sem ég fékk frá íbúa á suðurfjörðum Austfjarða, atvinnubílstjóra sem ekur Suðurfjarðaveg nær daglega. Suðurfjarðarvegur, sem er hluti af þjóðvegi 1, er á mörgum köflum stórhættulegur og gersamlega ófullnægjandi. Sérstaklega er ástandið slæmt á milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Á þessum vegarkafla eru sex einbreiðar brýr, allar orðnar bæði slitnar og hættulegar. Við eina þeirra hefur vegurinn sigið svo mikið að brúin myndar blindhæð. Vegurinn er víða mjór, kantar eru skemmdir og vegaxlir vantar. Þegar bílar mætast við slíkar aðstæður, oft á blindhæðum eða í krappri beygju, skapast miklar hættur. Slitlagið er einnig orðið nánast ónýtt. Það er mikið stagbætt og þunnt. Mikil hvörf eru í veginum en þau myndast gjarnan þar sem lækur eða á eru leidd í rör undir veginn og vegurinn sígur sitt hvorum megin við rörið. Þau myndast einnig þar sem undirlagið hefur sigið, bæði vegna umhleypinga og þungrar umferðar. Tvisvar sinnum í vetur gerðist það í vatnavöxtum að vegurinn skolaðist í burtu við svona rör og í öðru tilfellinu urðu slys á fólki þegar bíll þess hrundi ofan í 2 metra djúpan skurð sem myndaðist.
Snarbrattar Kambanesskriður eru á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar. Þar er snjóflóðahætta og mikið grjóthrun. Það er heppni að ekki hafi orðið stórslys þar vegna þessa en oft hefur munað litlu. Íbúar, þar með talin börn á leið í skóla og íþróttir, ferðast eftir þessum vegi allt árið um kring. Fólk á svæðinu sækir vinnu, menntun, verslun og þjónustu eftir þessum sama vegi. Það er óásættanlegt að þessi lífæð sé látin grotna niður. Þetta er innviðaskuld sem taka verður á í fjórðungi sem færir þjóðarbúinu mikil verðmæti. Ég hef boðið hæstv. ráðherra málaflokksins um svæðið og vona að hann þekkist boðið.