156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Uppbygging hjúkrunarheimila er eitt af mikilvægari málum í samfélaginu okkar og þarf að vera sett í forgang. Ég held að við séum flest sammála um það. Öldruðum fjölgar hratt og þörfin fyrir þjónustu af ýmsu tagi þeim til handa vex með ári hverju. Ríkisstjórnin er með áform um fjölgun hjúkrunarheimila sem er vel og hvet ég ráðherra til að ýta slíkum verkefnum sem fyrst úr vör, verkefnum sem þegar hafa verið undirbúin og bíða einungis ákvörðunar ríkisins. En nú er það svo, eins og annað slagið er vakin athygli á og margir eru meðvitaðir um, að það er ekki einungis aldrað fólk sem þarf á hjúkrunarrýmum að halda. Samkvæmt upplýsingum og eftir því sem ég kemst næst eru um 150 manns yngri en 67 ára búsettir á hjúkrunarheimilum, flestir á almennum deildum heimilanna. Yngstu íbúarnir eru á fertugsaldri. Yngra fólk með mikla þörf fyrir aðstoð hefur á undanförnum árum flutt í auknum mæli inn á hjúkrunarheimili, t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu. Það skal tekið fram að enginn fer inn á hjúkrunarheimili nema að undangengnu formlegu mati á heilsu og færni sem leitt hefur í ljós að viðkomandi geti ekki lengur búið á eigin heimili þrátt fyrir félagsþjónustu, heimahjúkrun og önnur stuðningsúrræði. En það segir sig sjálft að þarfir og óskir fólks á fertugs- eða fimmtugsaldri eru aðrar en flestra aldraðra. Heilbrigðisráðuneytið birti síðastliðið sumar niðurstöður starfshóps sem greindi stöðu yngra fólks í þessari stöðu og voru lagðar fram tillögur að úrbótum og framtíðarfyrirkomulagi. Til dæmis er bent á þörfina fyrir sérstakar deildir eða kjarna fyrir yngra fólk sem er búsett á almennum hjúkrunarheimilum. Ég veit til þess að fulltrúar fyrirtækja í öldrunarþjónustu, eins og Hrafnistu, hafa kynnt hugmyndir sínar í þessum efnum og hvet ég ráðherra til að vinna með þær tillögur og leggja sitt af mörkum til að sérstök hjúkrunarheimilisúrræði fyrir ungt fólk sem þarf á slíkri þjónustu að halda verði að veruleika. Þetta eru sjálfsögð mannréttindi.