veiðigjald.
Forseti. Ég vil byrja á því að hrósa ráðherra og ríkisstjórn fyrir að leggja þetta mikilvæga mál fram en biðja þingmenn að hugsa aðeins með sjálfum sér: Hvenær munið þið fyrst eftir að þið hafið hugsað um sjávarútvegsmál? Ég veit ekki af hverju ég er að spyrja að þessu nema vegna þess að það rifjaðist upp fyrir mér á einhvern furðulegan hátt á koddanum í gærkvöldi, eftir að hafa hlustað á allar ræðurnar í gær, að alla vega var fyrsta ræðan sem ég flutti þar sem komið var inn á sjávarútvegsmál örlítið upphafin, svolítið hátíðleg ræða á fullveldisdegi stúdenta, 1. desember 1994, þegar ég var formaður stúdentaráðs. Þetta var í stóra sal Háskólabíós og það voru líklega 13 í salnum. Ég væri auðvitað fyrir löngu búinn að gleyma þessu nema vegna þess að ungur blaðamaður, Egill Helgason, var af tilviljun staddur á staðnum og flutti um þetta frétt sem mér fannst merkilegur hlutur í kvöldfréttatíma sjónvarps það kvöld. Þessi formaður stúdentaráðs var að tala um áhyggjur sínar af áhrifum kvótakerfis í landbúnaði og sjávarútvegi á þann þröskuld sem það hefði verið fyrir ungt fólk að fara inn í þessar mikilvægu atvinnugreinar til sjávar og sveita.
Mig grunaði ekki þá hverjar afleiðingarnar voru af þeim breytingum sem nýverið höfðu verið gerðar en við öll sem höfum talað við mjög skuldsetta unga bændur vitum hvernig staðan er landbúnaðarmegin. Breytingarnar sjávarútvegsmegin eru miklu meiri og við erum merkilegt nokk ekki, þrátt fyrir eiginlega allar ræðurnar sem haldnar voru í gær, að tala um áhrif kvótakerfisins á byggðir landsins vegna þess að þau eru að mjög miklu leyti þegar orðin. Þessar breytingar hafa ekki í grundvallaratriðum áhrif á hvernig óbreytt kvótakerfi mun halda áfram að valda þeim breytingum, hvort sem fólki líkar betur eða verr. Þetta þarf að horfast í augu við.
Þetta mál snýst um það hvernig við skiptum arðinum af auðlindinni. Það hefur margoft, eins og hefur verið nefnt, verið reynt að ná einhvers konar sátt um það. Hófsemd fulltrúa almennings, Alþingis Íslendinga, og sáttarhendurnar hafa birst í því að sáttin átti að byggjast á því að almenningur, þjóðin, fengi hvað, 33% af auðlindarentunni, það var nú öll frekjan fyrir hönd almennings en sjávarútvegurinn 2/3, 67%. Mér finnst Alþingi hafa brugðist gjörsamlega fyrir hönd almennings í að tryggja þjóðinni sanngjarnan hlut af auðlindinni, meira að segja og jafnvel þó að maður telji 33% vera sanngjarnt. Þeir þingmenn sem héldu hér ræður í gær, og voru ekki enn þá búnir að taka það inn að verðið sem miðað hefur verið við er ekki markaðsverð heldur rangt verð þannig að þjóðin hefur verið hlunnfarin í öll þessi ár eftir að 33% voru sett fram, hljóta að verða að hugsa sinn gang. Þetta hefur ekki bara áhrif á það hvernig veiðigjöld eru greidd heldur líka á laun sjómanna, útsvar til sveitarfélaga af launum sjómanna og meira að segja þau hafnargjöld sem útgerðin greiðir við löndun um land allt.
Það var líka talað um að það hefði vantað samráð. Samt er hér ný bók, og ég segi bók eða stóreflis rit, upp á 400 síður sem síðasta ríkisstjórn tók saman eftir gríðarlega ítarlegt samráð og hvað stendur þar um það hvað þjóðin hefur fengið af auðlindarentunni undanfarin ár, eða frá 2009? Þar er dregið saman á bls. 64 að veiðigjöldin hafi verið mishá, en, með leyfi forseta:
„Að meðaltali hefur verið innheimt milli 16-18% af reiknaðri auðlindarentu í veiðigjöld á síðustu tólf árum, sé miðað við útflutningsverðmæti afla á Íslandsmiðum og gefnar forsendur um auðlindarentu sem hlutfall af verðmæti.“
Það liggur sem sagt fyrir í sameiginlegri vinnu sjávarútvegsins og stjórnvalda að það eru allir þess meðvitaðir að þjóðin hefur ekki fengið 33% af auðlindarentunni, sem í upphafi var hóflegt og lágt markmið, heldur 16–18%. Og hvað ætlum við að gera í því? Jú, við ætlum að leiðrétta útreikningana þannig að þjóðin fái nær 33%. Á þetta að koma einhverjum á óvart eða hvernig þetta er gert? Nei. Á næstu blaðsíðu í bókinni um samráðið, Auðlindinni okkar, segir, með leyfi forseta:
„Einnig kæmi til greina að mati starfshópsins að viðhalda núverandi kerfi veiðigjalda en meta reiknistofn veiðigjalds í því skyni að hann endurspegli sem best auðlindarentu. Hér þyrfti sérstaklega að horfa til áhrifa fjármagnskostnaðar, aukafyrninga og milliverðlagningar.“
Milliverðlagningar. Hvað er það? Jú, það er það tæki sem notað hefur verið til að lækka verðið sem miðað er við þegar veiðigjaldið er reiknað. Hvernig hafa málin þróast undanfarin ár? Það sem við erum öll sammála um og endurspeglaðist mjög vel hér í umræðunni, er að sjávarútvegurinn er ein meginstoð íslensks efnahagslífs en umræðan í gær var eins og hún væri nánast sú eina. Ferðaþjónustan skilar reyndar tæplega tvöfalt meiri útflutningstekjum. Ál og stóriðja eru álíka stór í útflutningsverðmæti og sjávarútvegur og hugvitsgreinarnar, sem hafa vaxið jafn hratt og ferðaþjónustan, ef ekki hraðar, á síðustu tíu árum eru farnar að nálgast sjávarútveginn og álið býsna mikið en af áhyggjunum í þessum sal mætti halda að sjávarútvegurinn væri á vonarvöl. Svo er ekki. Samþykkt frumvarpsins mun þýða að hámarki að tæpur milljarðatugur mun dragast frá hagnaðinum, sem er hver? 60, 70, 80 milljarðar á ári á undanförnum árum. Þess vegna eru áhyggjur mínar af því þær að þrátt fyrir þessar breytingar þá séum við hugsanlega ekki að tryggja þjóðinni nægjanlega hlutdeild í auðlindarentunni.
Við hljótum þess vegna að skoða hugmyndir. Hugmyndir hverra? Síðustu ríkisstjórnar og sjávarútvegsins, ekki bara í þessari þykku bók heldur í gildandi fjármálaáætlun sem síðasta ríkisstjórn skildi eftir sig og frumvarpinu sem síðasta ríkisstjórn setti í samráðsgátt um það að hækka hugsanlega reiknistofninn úr 33% í 45% en á móti yrði 10% álag á aflaverðmæti uppsjávartegunda fellt brott, að skoða sérstaklega sérstakar fyrningarreglur sem sjávarútvegurinn býr við þannig að hann getur fyrnt allar fjárfestingar hraðar heldur en aðrar greinar, og síðast en ekki síst þá er ég þeirrar sannfæringar að við eigum að gera tilraun með leigu aflahlutdeildar á markaði eins og lagt er til í Auðlindinni okkar og myndi styrkja okkur í að fá sýn á raunverulegt verðmæti auðlindarinnar og værum við þannig að koma til móts við raddir úr sjávarútvegi sem réttilega benda á að við megum ekki vera með gjöld eða innheimtu umfram það sem sjávarútvegurinn sjálfur treystir sér til að greiða, og langbesta og kannski eina leiðin til þess er að bjóða þessa hluti út á markaði.
Áhyggjur af byggðum voru áberandi í umræðunni og ég skil það. En það eru áhyggjur sem hefðu átt að koma fram um svipað leyti og ég var ungur stúdent að halda ræðu árið 1994. Áhrifin eru að mjög miklu leyti orðin en munu sannarlega að einhverju leyti halda áfram vegna sömu krafta og hafa verið að verki undanfarin ár. Í þessari bók kemur fram að 80% þjóðarinnar telji að í byggðum sem byggja á sjávarútvegi sé mikilvægt að huga að fjölbreyttari atvinnustarfsemi. Hvers vegna telur þjóðin þetta? Þetta er ekki bara skoðun, hún veit að það hefur ekki verið hægt að treysta á að það verði engar breytingar þegar sjávarútvegurinn er annars vegar, út af kvótakerfinu. Það var mikið spurt: Hver eru áhrifin af því að gera þetta? Ég skil það og því er svarað í greinargerðinni. En ég vil spyrja: Hver eru áhrifin af því að gera þetta ekki?
Bókfært eigið fé sjávarútvegsins hefur hlaðist upp á undanförnum árum vegna þess að samfélagið hefur gefið sjávarútveginum eftir ótrúlega mikinn hluta af auðlindarentunni. Það er núna tæpir 500 milljarðar og það er ljóst að sterk eiginfjárstaða útgerðarinnar byggist að umtalsverðu leyti á einkaleyfi hennar til nýtingar á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Það hefur skipað útgerðinni og eigendum hennar í sérflokk í íslensku atvinnulífi. Það eru skýrar vísbendingar um það, eins og kom fram hér fyrr í umræðu dagsins, að fjárfestingar tengdar fyrirtækjum í sjávarútvegi í alls óskyldum greinum hafi aukist gríðarlega á undanförnum árum. Þjóðin hefur gefið eftir eðlilegan hlut sinn af arðinum, ekki bara, eins og mátti skilja af umræðunni í gær, til að sjávarútvegsfyrirtæki gætu fjárfest í sjávarútvegi heldur til þess að eigendur sjávarútvegsfyrirtækja gætu keypt sig inn í nær allar aðrar atvinnugreinar í landinu, í okkar fámenna landi sem má ekki við meiri fákeppni, svo ekki séu notuð stærri orð.
Útgefendur Viðskiptablaðsins gefa líka út Frjálsa verslun og það verður aldrei sagt um þá útgefendur eða Viðskiptablaðið að það standi ekki með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi. Frjáls verslun dró það fram að fjórar fjölskyldur í sjávarútvegi og eitt kaupfélag ættu a.m.k. 483 milljarða kr. í lok árs 2023. Sá auður hefur væntanlega vaxið mjög síðan. Þetta tengist spurningunni ekki eins og alltaf var spurt í gær: Hvaða áhrif hefur það að samþykkja þetta eins og það liggur fyrir, heldur hvaða áhrif hefur það að samþykkja þetta ekki? Ætlum við að horfa áfram upp á þá samþjöppun auðs og valda sem hefur verið raunveruleikinn undanfarin ár og áratugi vegna þess kerfis, vegna arðsins af auðlindinni, eða getur verið að eitt brýnasta samfélagslega viðfangsefnið sé að þjóðin taki til sín þann arð sem hún á af þjóðareigninni til innviðafjárfestinga í kringum landið, til uppbyggingar í menntun, vísindum, grunnrannsóknum, öðrum atvinnugreinum, þjóðþrifamálum eða lækkun skulda eða hverju því sem Alþingi Íslendinga ákveður? (Forseti hringir.) Ég segi já. Við verðum að styðja þetta frumvarp (Forseti hringir.) en við verðum líka að muna stóra markmiðið er að þjóðin fái eðlilegan arð af auðlindinni.