veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sína. Þar kom fram að Alþingi hefði brugðist þjóðinni gjörsamlega í því að tryggja henni arð af auðlindinni. Því þyrfti að hækka veiðigjöld um nokkra milljarða. Því vil ég spyrja hv. þingmann sem fyrrum borgarstjóra hér í Reykjavík, stærstu verstöð landsins, hvort hann sem borgarstjóri hafi ekki fundið fyrir áhrifum þess að það væri fjárfestingargeta í sjávarútvegi, þeim áhrifum sem sjávarútvegur hefur á fjölda starfa, á tekjur og fjölgun fyrirtækja hér á höfuðborgarsvæðinu. Hvort að hv. þingmaður hafi ekki fundið skýrt fyrir því í störfum sínum sem borgarstjóri.