veiðigjald.
Forseti. Ég þarf að bæta við þetta með að Alþingi hafi brugðist. Ég hefði sanngirninnar vegna átt að bæta við að það var gerð heiðarleg tilraun hér kjörtímabilið 2009–2012 og veiðigjöld voru þá hækkuð eftir hrun og skiluðu sér án þeirra alvarlegu afleiðinga sem spáð hafði verið fyrir sjávarútveginn. En ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Sjálfstæðisflokksins var ekki fyrr búin að taka við en það var byrjað að hola þetta að innan og koma fyrir alls konar hlutum sem fyrirtækin geta notað til að skila minna til samfélagsins.
Fyrirtækin í Reykjavík, svo því sé til haga haldið, HB Grandi og Brim eftir það, hafa verið hvað opnust fyrir því að borga hærri veiðigjöld og hafa oft og snemma lýst því yfir í ræðu og riti í hinni almennu umræðu. Þau og fyrirtæki þeim tengd hafa vissulega fjárfest í tækjakosti, í góðum innviðum og í atvinnulífi innan, og kannski utan, sjávarútvegs. Það kemur í ljós í skýrslunni.