156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:25]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil fylgja því eftir við hv. þingmann hvort hann hafi engar áhyggjur af því og hvort hann telji það ekki líka framlag að auðlindin, sú mikla fjárfesting og mikla nýsköpun, t.d. í tæknigeiranum sem byggist mest upp hér á höfuðborgarsvæðinu — við erum að tala um Marel og alla tæknivinnsluna, Sjávarklasann, sem er nú bara hér nánast í næsta húsi. Ég heyrði að hv. þingmaður hafði áhyggjur af launum sjómanna. En hefur hann ekkert áhyggjur af launum fiskvinnslufólksins og störfum fiskvinnslufólksins sem vinnur hér rétt hjá okkur? Hefur hann engar áhyggjur af þessum áhrifum sem — þetta snýst ekki um upphæð veiðigjaldanna, þetta snýst um útfærsluna og hvernig virði auðlindarinnar er sótt og hvernig það skapast. Getur hann ekki séð það virði sem þetta er að skapa hér í kringum okkur í þessu þinghúsi og hefur hann engar áhyggjur af þessu?