156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég ætla að reyna að átta mig á hvaðan hv. þingmaður er að koma með málflutningi sínum. Því langar mig að biðja hv. þingmann að svara tveimur spurningum. Hvort skiptir að mati hv. þingmanns meira máli fyrir hag lands og þjóðar; heildarskattspor sjávarútvegsins eða upphæð veiðigjaldsins, afmörkuð? Hin spurningin er: Telur hv. þingmaður að auðlindarenta og hagnaður sé það sama?