156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Þá er ræða hv. þingmanns enn undarlegri því að það kom nú bara beinlínis fram í ræðu hv. þingmanns að hann liti þannig á að auðlindarenta og hagnaður væru það sama þegar hann vísaði til þess að það væri verið að horfa til þess að taka 33% af auðlindarentu sjávarútvegsins. Hv. þingmaður fær þá tækifæri til að leiðrétta þá missögn sína.

Hv. þingmaður brigslaði mönnum sömuleiðis um lögbrot í ræðu sinni, talaði um rangt verð, að rangt verð hefði verið notað, þegar fyrir liggur að það er auðvitað á grundvelli Verðlagsstofu skiptaverðs, kjarasamninga og ákvæða tekjuskattslaga um milliverðlagningu sem þetta er reiknað út í dag. Hæstv. atvinnuvegaráðherra kom nú hér í andsvar í gær og tilgreindi að ráðherrann sæi ekki tilefni til að tala um að farið hefði verið fram hjá gildandi rétti í þessum efnum. Það er mikið talað um leiðréttingu. Mig langar bara að spyrja, af því að nú er hv. þingmaður góður íslenskumaður: (Forseti hringir.) Leiðrétting, er þetta ekki bara skattahækkun sem hér um ræðir? Leiðrétting á við um eitthvað sem á að leiðrétta ef það er rangt útfært. (Forseti hringir.) Á grundvelli þess sem lög leiða út þá er ekkert rangt í þeim útreikningum sem grundvalla verðið í dag. (Forseti hringir.) Eru þetta ekki allt einhverjir orðaleppar sem hér er boðið upp á?

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir. hv. þingmenn á að ræðutíminn er ein mínúta.)