veiðigjald.
Forseti. Þegar við reiknum auðlindarentu þá verðum við að miða við markaðsverð. Þess vegna er það rangt verð að leggja til grundvallar verð sem verður til í milliviðskiptum tengdra aðila eða jafnvel innan sama fyrirtækis. (BergÓ: Samkvæmt lögum.) Þar er ég ekki að tala um lögbrot heldur einfaldlega rangt verð til þess að fá út auðlindarentuna því að hana verðum við að reikna út út frá markaðsverðmæti viðkomandi auðlindar. Þess vegna miða Norðmenn við heimsmarkaðsverð á olíu þegar þeir eru að reikna sér arð af olíunni í hús. Og þess vegna er þetta rangt verð og þarf að leiðrétta.
Um hitt get ég hins vegar alveg verið sammála þingmanninum, að það bregður mjög fyrir orðaleppum í þessari umræðu. En hún er ekki þeirra megin sem eru fyrst og fremst að kalla eftir því að þjóðin fái eðlilegan arð af auðlind sinni og eign.