156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:31]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir hans framsögu hérna. Þar úði og grúði af öllum mögulegum útfærslum á því hvað ætti að gera í sjávarútvegi. Það var uppboðsleið og það voru hærri gjöld og ég held að hann hafi verið kominn í fyrninguna líka. En það er nú bara þannig að nú á dögunum kom frétt um það að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, sem veltir um 26 milljörðum kr., var með 500 millj. kr. tap í fyrra og ef þessi veiðigjöld hefðu verið komin í framkvæmd þá hefði tapið verið 1,2 milljarðar. Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hefur sagt að við verði brugðist. Það er nefnilega þannig að í greinargerð, sem unnin var af dr. Ragnari Árnasyni og dr. Birgi Þór Runólfssyni, kemur fram að með fyrirhuguðum hækkunum verði virkur tekjuskattur á veiðar af botnfiskstegundum 71% og uppsjávarfiski 83%. Finnst hv. þingmanni það ekki svolítið vel í lagt ef virkur tekjuskattur er orðinn milli 70 og 85%?