veiðigjald.
Forseti. Ef spurningin er sú hvort það sé ástæða til að fara yfir þær sérreglur sem búnar hafa verið til fyrir sjávarútveginn til að afskrifa hraðar og færa á móti kostnað, t.d. eins og veiðigjöldin, í raun til þess að lækka hagnað og þar með skattsporið, þá tel ég fyllstu ástæðu til að fara yfir ýmsa svona hluti. Ég hef ekki skoðað ársreikninga Ísfélagsins eða annarra en það er sjálfsagt fyrir okkur í framhaldinu að gera það með eitt markmið; að þjóðin fái eðlilega hlutdeild og arð af auðlindinni.