156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:33]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil grípa lokaorð hv. þm. Dags B. Eggertssonar þar sem hann segir að þjóðin þurfi eðlilegan og réttlátan arð af auðlindinni. Nú er það í stjórnarsáttmálanum að það eigi að búa til auðlindastefnu og taka auðlindagjald af öllum auðlindum. Má búast við því að það komi frumvarp núna á haustdögum um auðlindagjöld af heitavatnsnotkun og heitu vatni t.d.? Megum við búast við því að þeir sem eru að nota takmarkaða orku og takmarkaða auðlind, sem er heitt vatn, að það komi frumvarp frá ríkisstjórninni þess efnis að þjóðin fái réttlátan hlut af auðlindinni sem heita vatnið er?