veiðigjald.
Forseti. Núverandi ríkisstjórn ætlar að leggja auðlindagjöld á allar auðlindir og, eins og fram hefur komið, verja heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki fyrir verðlagi. Stefna Sjálfstæðisflokksins og ræður hér varðandi sjávarútveginn, ef við tökum sambærilegt dæmi úr orkuiðnaðinum, eru eins og ræður um það að það sé forgangsverkefni í orkumálum að lækka orkuverð til stóriðjunnar þannig að hún geti nú fjárfest meira, staðið í nýsköpun og styrkt byggingu knattspyrnuhússins heima. Þetta er auðlindastefna Sjálfstæðisflokksins á meðan við stöndum fyrir því að það sé eðlilegt að taka markaðsverð af stórnotendum orku, verja heimilin og lítil og meðalstór fyrirtæki, að það sé eðlilegt og sanngjarnt og löngu réttlátt að þjóðin fái eðlilegan arð af sjávarauðlindinni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)