156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:36]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir sína ræðu. Ég og hv. þingmaður komum úr mismunandi áttum. Við erum náttúrlega í sitthvorum flokknum. Ég er þingmaður Norðvesturkjördæmis og hv. þm. Dagur B. Eggertsson er þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður og fyrrverandi borgarstjóri í þeirri borg sem jafnframt er stærsta verstöð landsins, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom inn á. En við erum saman í þeim meiri hluta sem stendur á bak við þetta mál. Síðan heyrði ég líka að við deilum áhuga á uppboðsleiðinni svokölluðu, teljum það vera bestu leiðina að láta markaðinn verðleggja aðganginn að auðlindinni. Það er ekki mikill tími eftir en ég vil spyrja hv. þingmann: Ef hann fengi að ráða, hvort myndi hann frekar kjósa þessa leið sem sem ríkisstjórnin er að leggja til núna eða þá leið sem síðasta ríkisstjórn ætlaði að fara, að í rauninni halda grunnstofnunum óbreyttum en hækka prósentuna úr 33% í, að mig minnir, 45%?