156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:40]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Hér er rætt um veiðigjald. Það er ekki rætt um hvort setja eigi veiðigjald á heldur er rætt um útfærslu á því hvernig veiðigjaldið verði reiknað. Nú virðist það vera aðalmarkmið hæstv. ríkisstjórnar að telja landsmönnum trú um að þau séu góða fólkið sem ætli að hafa þetta allt svo réttlátt og sanngjarnt. Eitthvað minna fer fyrir umræðunni um það hvað sé skynsamlegt, það fer eitthvað minna fyrir öllum greiningum og áhrifamati, sviðsmyndagreiningum og öðru, hvernig við fáum sem þjóð mestu verðmætin fyrir auðlindina í hafinu.

Ég heyri það ekki. Ég heyri bara einhver popúlísk slagorð, sem ég vil kalla svo, um leiðréttingu, sanngirni, að rangt hafi verið gefið, um sérhagsmunagæslu. En að það sé rökstuðningur eða einhverjar upplýsingar um af hverju þetta sé besta leiðin sem muni skila sem mestum verðmætum fyrir íslenskt þjóðarbú, það vantar. Það er eins og að það sé aðalatriðið að það eina sem íslenskur sjávarútvegur, stóru vondu útgerðarkarlarnir, leggi til ríkissjóðs sé það sem veiðigjöldin skila, að það sé það eina.

Ég hef heyrt minna um staðreyndir eins og þær að því hærri sem kostnaður útgerðarfélaganna er — það eru um 900 útgerðir sem borga veiðigjöld á landinu, en þetta frumvarp beinist gegn þeim tíu stærstu, kannski 30 stærstu, sem menn vilja tala mest um; ég held að því sé bara beint gegn fjórum eða fimm stærstu fyrirtækjunum svona í huganum — og því meiri sem kostnaðurinn verður við veiðigjöldin þá minnkar skattsporið annars staðar. Ef útgjöldin hækka á einum stað þá eru þau frádráttarbær á hinum staðnum og umsvif fyrirtækisins minnka þannig að tekjuskatturinn verður minni. Fjárfestingarnar verða líka minni, störfin verða færri. Það er hvergi talað neitt um það. Þetta kemur svolítið á óvart.

Mig langaði í minni ræðu að reyna að tala um þetta í svolítið breiðara samhengi, að við afgreiðum ekki bara eitthvert mál með slagorðum, órökstuddum slagorðum, heldur að við fáum hér upp í umræðunni heildaráhrifin, áhrif sjávarútvegs til góðs fyrir land og þjóð, áhrif þessa frumvarps sem getur dregið úr þeim góðu áhrifum sem sjávarútvegur hefur. Þó að ég sé kallaður hér sérhagsmunagæsluaðili sem fari eftir flautum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi þá er þetta bara svo stórt og alvarlegt og mikilvægt mál að ég kem samt upp og tala gegn því, enda er engin skynsemi í neinu öðru. Það er sagt hér að það sé hótun um að fiskvinnslum verði lokað nái þetta fram að ganga, að það sé hótun um að störfum fækki, að það sé hótun um að fiskur fari meira úr landi á næstunni. Svo á góðviðrisdögum tala allir gegn samþjöppun í sjávarútvegi.

En hvað gerist? Hvað gerist þegar auknar álögur eru lagðar á rekstur eða heimilisbókhald? Mér er alveg sama hvort álögurnar heita leiga, leiðrétting, afnotagjald, auðlindarenta — það má kalla það hvað sem er. Þetta er aukinn kostnaður fyrir rekstur, sama hvað það heitir. Þetta er aukinn kostnaður. Og þegar kostnaður eykst og þú vilt geta fjárfest áfram, vilt geta skilað afgangi, geta borgað laun, vilt ekki fara á hausinn, þá hlýtur að draga úr kostnaði einhvers staðar. Það hlýtur að draga úr kostnaði. Það er það sem íslenskur sjávarútvegur hefur þurft að gera eftir að aflabrestur hafði orðið, eftir að auðlindagjöld voru lögð á, eftir að auknar kröfur höfðu verið gerðar. Sjávarútvegurinn hefur sjálfur borgað þessa hagræðingu. Í mörgum atvinnugreinum, í landbúnaði og annars staðar, hefur ríkið komið að því að borga hagræðinguna en sjávarútvegurinn hefur borgað þessa hagræðingu sjálfur. Og hvernig gerist þessi hagræðing? Hún gerist þannig að minnstu útgerðaraðilarnir sjá ekki hvernig þeir geta hagrætt. Stóru útgerðirnar geta bara lagt einum bát og hagrætt þannig og veitt þetta bara á færri skipum með færra starfsfólki; sama aflaverðmæti fyrir minni kostnað. Litla útgerðin, ef hún leggur einum bát, þarf að setja stein út í fjöruna og draga netið inn af því að það er enginn bátur til þess að veiða aflann. Ef þú segir hásetanum upp þá er skipstjórinn orðinn einn eftir í bátnum. Það er ekkert eftir annað en að selja þeim sem getur hagrætt og þeim sem hefur efni á að kaupa aflaheimildir.

Það hefur vissulega verið samdráttur í aflaheimildum, það er búin að vera tækniþróun og annað slíkt þannig að samþjöppun er hluti af þróun en allar álögur hraða þessu enn meira. Af ýmsum ástæðum hefur verið samþjöppun í sjávarútvegi, af mörgum ástæðum. Það hefur orðið til þess að fyrirtæki hafa verið að sameinast. Í sameinuðum fyrirtækjum eru kannski ein upp í þrjár til fjórar vinnslur. Vondu útgerðarmennirnir hafa haldið aftur af sér að loka þessum vinnslum, hafa bara haft þær áfram í rekstri. Stundum fækkað þeim um eina eða tvær en hafa enn tvær í rekstri og annað slíkt. En þegar álögur hækka, þegar búið er að hækka launakostnað, hækka kolefnisskattinn, hækka veiðigjöldin, hækka allar álögur, það verður loðnubrestur, gengið verður sterkt, þá náttúrlega gefur eitthvað eftir. Þá þarf að fara að loka þessum vinnslum. Þá er kannski ekki hægt að reka tvær vinnslur ef þú kemst upp með að reka eina bara til að hafa rekstur réttum megin við núllið. Ég held að þetta sé bara eðlilegur rekstur og gerist í öllum fyrirtækjum, ekki bara í sjávarútvegi, og svo er þetta bara kallað hótun.

Ég vil bara benda hv. stjórnarliðum og hæstv. ríkisstjórn á það að almennt hafa útgerðirnar farið eins hægt í hagræðingu og hægt er. En reglulega koma stjórnvöld með hótanir um það að taka af þeim aflaheimildirnar, breyta kerfinu, hækka veiðigjöldin, gera útgerðarmenn að glæpamönnum, segja að þeir séu vondir, séu að svíkja þjóðina, séu að stela frá þjóðinni. Á endanum gefst fólk upp og selur og það eru oftast minni aðilarnir sem selja þeim stærri. Þeir sem á helst að refsa hér með hærri veiðigjöldum verða þeir sem verða síðast fyrir barðinu á þessu. Svo er talað um eitthvert frítekjumark, sem er náttúrlega ekkert frítekjumark, þetta er afsláttur, og þegar þú ert að leggja skatt á og þarft að byrja á því að gefa meiri partinum af þeim sem eiga að borga skattinn afslátt þá hlýtur þú að vera kominn út í skurð með þá skattlagningu. Og hverjir eru það sem helst fá afsláttinn? Jú, það eru einmitt þeir sem keyptu ekki aflaheimildirnar. Þeir sem fá úthlutað aflaheimildum ár hvert í strandveiði, það eru þeir sem fá mesta afsláttinn.

Hv. þm. Dagur B. Eggertsson talaði um samanburð á kvótakerfi í landbúnaði og sjávarútvegi. Sjávarútvegur stendur mun betur rekstrarlega séð en landbúnaður. Við erum stolt af sjávarútveginum, og landbúnaðinum líka, en grundvallarmunurinn á milli sjávarútvegs og landbúnaðar — af hverju mismunandi rekstrarstaða er þarna á milli — er fjárfestingargetan. Það er mun meiri fjárfestingargeta í sjávarútveginum, mun meiri, og því er staðan betri. Það er út af því sem öll nýsköpun, nánast öll nýsköpun á Íslandi, mikill meiri hluti af nýsköpun á Íslandi og fjárfestingum í nýsköpun, er tengd sjávarútvegi beint og óbeint. Yfir 50% af einkaleyfum í íslenskri nýsköpun koma frá sjávarútvegi. Tæknifyrirtækin og nýsköpunarfyrirtækin, fullvinnsla sjávarafurða — það er út af fjárfestingargetu sjávarútvegsfyrirtækjanna. Og því stærri sem þau eru, því meiri verður fjárfestingargetan sem stuðlar að nýsköpun, en það skapar störf, skapar útflutningsverðmæti, tryggir byggð í landinu og eykur velsæld í íslensku þjóðfélagi. Finnst hv. stjórnarþingmönnum það óeðlilegt að sveitarfélögin í landinu, tæknifyrirtækin og nýsköpunarfyrirtækin í landinu hafi áhyggjur af þessu? Þau hafa áhyggjur vegna þess að þeim finnst ekki við sig talað, finnst ekki á sig hlustað og finnst ekki neitt mat hafi verið gert á áhrifum þessa. Þetta er alvarlegur hlutur og því er það skylda mín, þó að ég sé kallaður sérhagsmunagæsluaðili fyrir það, að benda á þetta og verja þá velsæld sem íslenskt þjóðfélag fær frá íslenskum sjávarútvegi. Við skulum bara hafa það alveg á hreinu að það er fiskvinnslufólkið, minni nýsköpunarfyrirtækin sem stærri, sveitarfélögin, byggðirnar í landinu sem munu finna fyrstu vondu áhrifin af þessum breytingum ef þetta verður ekki gert rétt. Það eru lögð á veiðigjöld og hér er talað um að það verði að vera 33% og svo sé það bara spurning af hvaða stofni þessi 33% eru tekin. En ef stofninum er breytt má þá alls ekki skoða hvort 33% talan sé raunhæf og hvaða áhrif hún hefur? Ætlar hæstv. ríkisstjórn bara að keyra þetta mál í gegn á slagorðum, popúlískum slagorðum, án þess að gera í alvörunni mat á því hver áhrifin eru og hvort áhrifin séu þau sem við viljum? Viljum við fækka fiskvinnslustöðvunum þar sem nú eru hæst launuðu kvennastörfin eins og komið hefur fram? Viljum við draga úr útflutningstekjum af nýsköpun? Viljum við hætta á það að hér fækki fiskvinnslum enn hraðar en tilefni er til? Viljum við að það fari meira af óunnum fiski úr landi?

Það er alveg hægt að segja að stórútgerðin hafi efni á þessu. Auðvitað hefur hún efni á þessu af því að hún getur hagrætt fyrir þessu, það er minnsta mál. En er það það sem við viljum? Við þurfum að átta okkur á því hvað þetta er stórt og mikið mál. Ég var bara rétt að byrja á ræðunni og þá er tíminn búinn; það er aldrei að vita nema ég fái að koma hér einu sinni eða tvisvar í viðbót og halda áfram. Ég hlakka til umræðunnar um þetta mál, sem hefur að mestu verið málefnaleg, og vona að okkur farnist að klára það skynsamlega.