156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:57]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er einmitt út af því, þegar slíkir gjörningar eru gerðir, að það eru viðmið hjá Skattinum sem þetta er allt saman miðað við, þannig að ef þú ert að gefa afslátt þá er reiknað endurgjald af því. Þetta er því ekki réttur samanburður.

Hv. þingmaður sagði hér að það eina sem þjóðin væri að biðja um væri sanngjarnt afgjald. Er það ekki visst afgjald að vera að skaffa hátt launað starf í sjávarútvegi? Er það ekki visst afgjald að auka útflutningsverðmæti? Það eru útflutningsverðmæti sem við þurfum að auka hér miðað við efnahagsástandið og stöðuna í heiminum. Er þetta þá rétti tíminn til að draga úr afgjaldinu með því að draga úr útflutningi, verðmætum íslensks sjávarútvegs? Það er það sem ég er að spyrja um. Er afgjaldið bara veiðigjöld eða er afgjaldið störf, fjárfesting í nýsköpun og þróun og auknum útflutningsverðmætum?