veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þó að ég líti út fyrir að vera ungur og barnalegur þá eru staðreyndirnar þær — sem ég var að reyna að rifja upp hér um þá þróun sem orðið hefur, hvernig sjávarútvegurinn hefur brugðist við þeim breytingum sem hafa orðið í samfélaginu, á álögunum og annað slíkt — að bara frá því að þessi áform ríkisstjórnarinnar voru kynnt hefur mikið af því sem hv. þingmenn stjórnarflokkanna kalla hræðsluáróður raungerst. Aðilar eru byrjaðir að selja aukategundirnar frá sér. Það er byrjað að segja upp beitningarfólkinu, starfsfólkinu. Það er byrjað að bregðast við svo fyrirtækin lendi ekki í mínus og það eru litlu og meðalstóru útgerðirnar sem eru byrjaðar að bregðast við. Þar munu áhrifin fyrst koma fram.