veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég ætla nú að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það getur vel verið að það sé þá einmitt byrjað að hagræða og kannski er það bara gott. Kannski þurfti að hagræða eitthvað og það er öllum hollt að gera það. En það er mjög ótrúverðugt að útgerðin sé á leiðinni að leggja upp laupana vegna þessa máls. Ég trúi ekki að hv. þm. Vilhjálmur Árnason haldi raunverulega að hann geti selt þjóðinni þessar upplýsingar bara svona hrátt, að það sé bókstaflega allt að fara til fjandans. Það er með ólíkindum hversu öfgafullt er talað um þessi mál hér. Það er talað um að hér sé um álögur og skatta að ræða þegar við erum í raun að tala um að hækka gjaldið af auðlindinni. Það er talað um að frítekjumarkið sé afsláttur. Það er einhvern veginn snúið út úr öllu til að láta þetta líta sem verst út. En það eru, held ég, bara mjög fáir að kaupa þennan málflutning. Það eru náttúrlega allir, alla vega flestir, búnir að sjá í gegnum þetta og það er ástæðan fyrir því að svo margir standa að baki þessu frumvarpi og hafa í raun beðið lengi eftir að sjá það líta dagsins ljós.