veiðigjald.
Virðulegur forseti. Þegar þú færð vissan afslátt af fyrstu milljónunum í veiðigjöld og svo færðu öðruvísi afslátt af næstu milljónum þá er það í mínum huga afsláttur en ekki frítekjumark. Frítekjumark er í mínum huga þegar þú byrjar ekki að borga fyrr en við vissa upphæð, bara til að upplýsa hv. þingmann um að það er ekki útúrsnúningur. Ég hef aldrei sagt í mínum málflutningi, aldrei, að útgerðin sé að leggja upp laupana og að hún geti ekki borgað þetta. Það hef ég aldrei sagt. Ég er bara að segja að hér kemur þingheimur og fólkið í landinu og talar gegn samþjöppun í sjávarútvegi, vill hafa lítil og meðalstór fyrirtæki gangandi, en ég er að segja að það eru þau sem eiga erfiðast með að taka á sig auknar álögur. Stórútgerðin getur algjörlega tekið á móti þessu, hún er svo miklu betur til þess fallin. Fólk telur sig vera að tala fyrir litlu og meðalstóru fyrirtækin en áhrifin verða mest þar. Eru það áhrifin sem við viljum fá fram? Það er spurningin sem ég er að leggja hér fram.