veiðigjald.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir ræðu hans hér um þetta mál. Ég hjó einmitt eftir því sem hann talaði um í síðasta andsvari sínu þar sem hann sagði að frumvarpinu væri sérstaklega beint gegn stærstu fyrirtækjunum í sjávarútveginum, sem kom mér nú nokkuð á óvart. Miðað við hvað fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa talað mikið um áhrif frumvarpsins á minni og meðalstórar útgerðir kom það mér á óvart að hv. þingmaður legði sérstaka lykkju á leið sína til að segja að frumvarpinu væri sérstaklega beint gegn þessum stærri fyrirtækjum. Ég ætlaði að spyrja hann út í það hvort hann teldi ekki að að þau gætu staðið undir þeim hækkunum sem frumvarpið leiddi af sér en hann er nú að einhverju leyti búinn að svara því, alla vega í andsvörum hér í dag.
En hitt sem mig langaði að ræða við hann og spyrja hann út í í staðinn eru afleiðingar kvótakerfisins sem hefur verið komið talsvert inn á í umræðunni í dag. Ég átti mjög erfitt með að skilja hv. þingmann öðruvísi en svo að hann harmaði í raun og veru þær afleiðingar kvótakerfisins sem við búum við í dag, þ.e. hvað varðar hagræðingu og samþjöppun kerfisins. (Forseti hringir.) Telur hann að þetta kerfi sem við búum við hafi í raun brugðist landinu ,(Forseti hringir.) og sérstaklega þá tilteknum landsbyggðum sem hafa þurft að þola þessa samþjöppun, að kvótinn hafi farið úr byggðarlaginu?