156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:08]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem ég hef verið að segja hér er að það sem ég tek út úr málflutningi hæstv. ríkisstjórnar og hv. stjórnarliða er að það er eins og að það sé bara allt í lagi að leggja þetta fram af því að stórútgerðin eigi að borga þetta og hinir eigi að fá afslátt. Það er að því leyti sem ég hef verið að halda því fram að þessu sé beint gegn stórútgerðinni en segi um leið að þó að hún geti vel greitt þetta þá er það þannig að áhrifin eru að koma mest niður á litlum og meðalstórum útgerðum sem eru í byggðum landsins sem við viljum öll, að ég tel, að haldist í byggð.

Afleiðingar kvótakerfisins — ég held að kvótakerfið hafi gefið okkur þá fjárfestingargetu sem er að skapa okkur alla þessa uppbyggingu í byggðum landsins í öflugum og flottum fiskvinnslum. Kvótakerfið skapar okkur fjárfestingargetu í allri þeirri nýsköpun sem er hringinn í kringum landið og skapar fullt af verðmætum störfum og útflutningsverðmætum. En það er margt annað, eins og ég kom inn á í ræðu minni, sem hefur ýtt undir samþjöppunina og þá hagræðingu sem orðið hefur í sjávarútvegi.