veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans andsvar og svör við mínum fyrirspurnum hér áðan. Það er rétt að taka það fram varðandi þessar áhyggjur af minni og meðalstórum útgerðum að það er alla vega komið til móts við það að einhverju leyti í því frumvarpi sem við ræðum hér á hinu háa Alþingi núna eftir samráð og athugasemdir sem komu fram. En mér finnst bara kristallast í þessum skoðanaskiptum okkar, á milli mín og hv. þm. Vilhjálms Árnasonar, skýr skoðanaágreiningur hvað varðar aðkomu þjóðarinnar að arðinum við nýtingu auðlinda í eigu þjóðarinnar. Við teljum einfaldlega að þjóðin eigi rétt á réttlátum og sanngjörnum arði af nýtingu auðlinda sem sannarlega eru í eigu hennar. Ég held að það sé það sem er að koma kristaltært fram í þessum skoðanaskiptum okkar hér í dag, að það er mjög skýr skoðanaágreiningur hvað þetta varðar.