156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:11]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið og góð skoðanaskipti hérna. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, það var einmitt komið til móts við lítil og meðalstór fyrirtæki í frumvarpinu, sem sýnir að málflutningur okkar og áhyggjur sveitarfélaganna og áhyggjur litlu og meðalstóru útgerðanna voru réttmætar. Þess vegna þurfti að bregðast við. Málflutningur okkar hefur því greinilega verið réttur og hann náði í gegn. Ég er ánægður með það. En hvort þetta gangi nógu langt og hvort við höfum náð að tryggja að þau áhrif komi ekki fram, sem hæstv. ríkisstjórn virðist hafa haft áhyggjur af líka, það er það sem við þurfum að fjalla um hérna. Og þetta með þjóðina og arðinn, það er kannski það sem við erum að takast á um hér. Við viljum öll að þjóðin fái sem mestan arð af auðlindinni, við erum öll sammála um það. En mælum við arðinn í upphæð veiðigjalda eða fjölda starfa og útflutningsvara og öðru sem lækkar verðbólgu og eykur hér hagvöxt? Er það ekki arður til þjóðarinnar? Um það erum við að deila.