veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirtaksræðu. Það hefur verið áhugavert að hlusta á þessa umræðu í gær og það sem af er degi. Ég tek undir það með hv. þingmanni, mér finnst umræðan að mestu leyti hafa verið málefnaleg. Ég held þó að það væri kannski hollt og gott fyrir alla að draga aðeins úr upphrópunum hér og tóna umræðuna niður. Að mínu viti er algjörlega ljóst að íslenskur sjávarútvegur mun halda áfram eftir þessa breytingu og það er algerlega ljóst í mínum huga að stærri útgerðirnar geta borið hærra veiðileyfagjald. Ég held að við séum bara öll nokkuð sammála um það. — Er tími minn búinn, virðulegur forseti?
(Forseti (BHar): Já, það er bara ein mínúta eftir.)
Heyrðu, ég hafði ekki einu sinni tíma fyrir spurninguna hér.
Það sem ég ætlaði að spyrja hv. þingmann um er að í greinargerðinni með frumvarpinu er talað um áhrif á fjárfestingagetu og samkeppni. Það er einhvern veginn gert lítið úr því hér, eins og það hafi engin áhrif. Ég spyr hvort þingmaðurinn haldi að þessir 7,5 milljarðar, sem verða teknir út úr greininni, muni ekki hafa áhrif á samkeppnishæfni og fjárfestingargetu.