veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu þótt seint hafi komið. Ég tel þetta eitt það mikilvægasta sem íslenskur sjávarútvegur færir okkur sem þjóð. Þetta tvennt er mesti arður þjóðarinnar af auðlindinni. Það er íslensk útgerð sem hefur gert þetta að auðlind; fiskurinn í sjónum verður ekki sjálfkrafa auðlind. Það þarf að skapa verðmæti úr fiskinum, þá fyrst verður hann auðlind. Og það er það sem útgerðin hefur gert og það verðmætasta í því er þetta tvennt sem hv. þingmaður spyr um, þ.e. samkeppnishæfnin á erlendum mörkuðum — við erum að selja fiskinn okkar á háu og góðu verði og höfum alltaf kaupendur — og framkvæmdagetan, fjárfestingargetan, þannig að hægt sé að fjárfesta í tækni, fjárfesta í vinnslu, fjárfesta í auknum verðmætum og auknum útflutningsverðmætum. Þetta tvennt er það mikilvægasta í íslenskum sjávarútvegi og ég hef mestar áhyggjur af því að frumvarpið sem við ræðum hér skerði þetta.