veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma inn á þetta mikilvæga atriði hér. Um helmingur af öllum sveitarfélögum á landsbyggðinni, úti í byggðum landsins, fyrir utan Hvítár-Hvítár svæðið, lýsir gríðarlegum áhyggjum af því að frumvarp sé lagt fram af hæstv. ríkisstjórn Íslands án þess að því fylgi áhrifamat á sveitarfélögin. Á sama tíma eru þessi sömu sveitarfélög að veita Alþingi umsagnir um frumvarp hæstv. ríkisstjórnar um skyldu til að áhrifamat sveitarfélaga fylgi þeim frumvörpum sem ríkisstjórnin leggur fram. Það er ekki einu sinni tekið fram í þessu máli. Það er eins með öll vinnubrögð þessarar ríkisstjórnar, yfir helmingur þeirra sveitarfélaga sem eru fyrir utan Hvítár-Hvítár svæðið eru að hafa áhyggjur af áhrifunum af þessu máli, að með þessu frumvarpi sé verið að taka byggðafestuna frá þeim.