156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:19]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna hér í gær og fyrir ágæta umræðu að miklu leyti um þetta mjög mikilvæga mál fyrir íslenskt samfélag. Ég hef í minni pólitík haft áhuga á því að tala um það sem ég kalla samhengi hlutanna sem mér finnst við stundum mega gera meira af. Það er nú þannig að í okkar ágæta samfélagi helst allt í hendur. Það er lítið um eylönd hér á okkar ágætu eyju. Því miður finnst mér þetta mál vera því marki brennt að samhengi hlutanna sé ekki endilega það sem er efst í huga hjá hæstv. ríkisstjórn heldur sé kannski verið að einblína á mjög afmarkaðan þátt, sem ég skil vel að hægt er að sjá með sínum gleraugum. En ég hef áhyggjur af því að restin af kökunni, restin af samfélaginu fái ekki jafn mikla athygli, ég hef áhyggjur af því. Það er nefnilega fjöldamargt um þetta mál að segja, þetta mál sem íslenskt samfélag þekkir svo sem orðræðu og umræðu um í lengri tíma. Því er sérlega mikilvægt að við ræðum þetta hér í þessum mikilvæga sal alveg ofan í grunninn og helst án mikillar frasapólitíkur sem mér finnst því miður hafa borið á.

Mig langar þá að byrja, frú forseti, á því að segja að tímasetning þessa máls vekur hjá mér ákveðna undrun. Það er hreinlega þannig að það eru blikur á lofti í heimsmálunum. Það ríkir mikil óvissa í alþjóðahagkerfinu. Tollastríð vofir yfir og átök sem hafa m.a. sett strik í reikning vöruflutninga. Markaðir eru hreinlega að viðkvæmir. Ferðaþjónustan er á mjög viðkvæmum stað og skýr merki eru um að sú mikilvæga stoð sé að gefa eftir. Væntingavísitalan er á niðurleið, verðbólgan á uppleið. Við þær aðstæður sem uppi eru ætti heldur að einbeita sér að því að efla samkeppnishæfni Íslands. Þess í stað er ráðist í miklar og fyrirvaralitlar breytingar á rekstrarumhverfi einnar stærstu atvinnugreinar landsins. Maður hefði haldið, frú forseti, að ef einhvern tímann væri tilefni til að stíga varlega til jarðar þá væri það nú. Þess í stað kemur hæstv. atvinnuvegaráðherra fram með ákveðna töfraformúlu, að því er virðist, með því að finna verð sem hentar til gríðarlegrar skattahækkunar á eina mikilvægustu atvinnugrein landsins. Stjórnvöld virðast algjörlega líta fram hjá þeirri staðreynd að heilbrigt atvinnulíf sem dafnar á eigin forsendum er grunnurinn að velferð Íslendinga. Atvinnufrelsið er ekki síður mikilvægt en einstaklingsfrelsið. Það er atvinnufrelsi sem er grunnurinn að velsæld samfélagsins sem íslenskt samfélag hefur svo sannarlega notið góðs af. Miðstýring, blóðmjólkun og stöðug afskipti ríkisins af atvinnurekstri hafa aldrei gefist vel. Þegar ríkið fer að einblína á að finna tækifæri í velgengni annarra og heimtar að taka stöðugt stærri hluta af kökunni til sín þá fer einfaldlega illa. Það er ekki og á ekki að vera hlutverk ríkisins.

Nú skyldi einhver ætla að ég sé fráhverf því að sanngjarnt gjald sé tekið fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum okkar. Það er ég ekki endilega og er vel til umræðu um það hvernig haga eigi þessum hlutum. Ég er sömuleiðis vel meðvituð um mikilvægi þess að við leggjum öll til samfélagsins. Ég er meðvituð um mikilvægi sáttar á milli þjóðarinnar og hennar mikilvægustu atvinnugreinar. En ég er hins vegar algerlega á móti glórulausum og illa rökstuddum skattahækkunum á mikilvæga hlekki í keðju samfélagsins án vandaðrar umræðu og skoðunar.

Ég er á móti því að meint sátt í samfélaginu fáist eingöngu með því að fólk og fyrirtæki beygi sig undir kreddur og staðlausa stafi, hversu oft sem þeir eru endurteknir. Framlag hvers og eins okkar á að vera sanngjarnt og í samræmi en fyrst og fremst eigum við að hugsa um heildarhagsmunina. Það hefur margsannað sig að það að mergsjúga fólk og fyrirtæki hefur letjandi áhrif. Það minnkar ekki aðeins skattstofnana til lengri tíma heldur fækkar það störfum og dregur úr fólki að framkvæma hugmyndir, fjárfesta og skapa sér fleiri tækifæri. Þarna er um grunnprinsipp að ræða sem við þurfum að tala um vegna þess að þessi hæstv. ríkisstjórn virðist algjörlega hafa misst sjónar á boltanum. Hæstv. forsætisráðherra varð tíðrætt um það í aðdraganda kosninga, hvað fiskveiðistjórnarkerfið varðar, að þar þyrfti að stíga mjög varlega til jarðar og yfir langan tíma. Engar kúvendingar, örugg skref. Hvað varð eiginlega um þau fögru fyrirheit, frú forseti?

Hæstv. ríkisstjórn ætlar að þröngva vanhugsuðu og hroðvirknislega unnu frumvarpi hér í gegn. Hún neitar að ræða áhyggjur greinarinnar sjálfrar og sérfræðinga af því hvaða áhrif það muni hafa í stóra samhenginu. Þetta mun allt bara reddast, heyrir maður hér í salnum. Það fylgir ekkert mat á áhrifum hækkunarinnar, bara einhver töfratala sem er gripin úr umhverfi sem hefur ekkert með íslenskan raunveruleika að gera, bara ekki neitt. Það fylgir ekkert mat á afleiddum áhrifum á viðkvæmar byggðir. Það fylgir engin rýni á hvernig sú aðferð sem nú á að miða við hefur reynst annars staðar.

Það á að notast við norsk verð án þess að taka inn í myndina að norskur sjávarútvegur er alls engin fyrirmynd þegar kemur að því að skapa störf og verðmæti, hvað þá skatttekjur. Hæstv. atvinnuvegaráðherra hefur þvert á móti notað villandi frasa, leyfi ég mér að segja, frú forseti, eins og leiðréttingu og skellt fram tölum yfir greinina í heild án þess að brjóta reikningsdæmið niður á einstaka hluta greinarinnar, útgerðir, þorpin, og án þess að skýra frá því hvað meintar mótvægisaðgerðir eiga að fela í sér og hvernig eigi að haga þeim. Er ætlunin að mergsjúga einn hluta greinarinnar bara til að búa til enn eitt ríkisstyrkjastjórnsýslusvartholið? Það fylgir engin úttekt eða skoðun á því hvaða áhrif þessi tvöföldun muni hafa niður virðiskeðjuna og hversu mikið af hækkuninni muni raunverulega skila sér. Það eina sem við fáum eru fullyrðingar ráðherra um að útgerðin hafi víst efni á þessari hækkun. Útgerðin er margvíslegri en svo að hægt sé að nota þetta eina einfalda orð um allt sem þar er undir. Þar er ekki um einhverja andlitslausa kynjaskepnu að ræða heldur ótal ólík fyrirtæki, stór og smá, um allt land.

Ef við tölum aðeins meira um afleiddu áhrifin, virðulegi forseti, hvaða stórkostlegu jákvæðu áhrif vel rekinn sjávarútvegur er að hafa úti um allt land. Þegar hefur verið rætt hér í pontu um þær 26 umsagnir ýmissa sveitarfélaga úti um allt land sem lýsa allar sem ein áhyggjum yfir áhrifum frumvarpsins á nærsamfélög þessara sveitarfélaga. Áhrifin takmarkast nefnilega ekki aðeins við fyrirtækin sjálf þótt það megi oft s greina af umræðunni hér, alls ekki. Áhrifin munu bitna á fólkinu sem starfar í greinunum og sveitarfélögunum sem byggja rekstur sinn á þeim útsvarstekjum sem starfsemin skapar. Í byggðarlögum þar sem sjávarútvegur stendur undir 30–50% af atvinnutekjum getur samdráttur í umfangi sjávarútvegs haft áhrif á alla innviði samfélagsins; verslun, þjónustu, skóla o.s.frv. Rétt er að minna á að skattspor fiskveiða og vinnslu nam tæplega 87 milljörðum kr. árið 2023, en 81% þess, þessarar risatölu, fellur til vegna starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins. Óumdeilt er að sjávarútvegurinn er burðarstólpi atvinnulífsins á landsbyggðinni.

Í kafla 5.1.3, um áhrif frumvarpsins á sveitarfélög, segir eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Komi til þess að einstakir greiðendur veiðigjalda taki ákvörðun um breytingar í rekstri sínum sem kunni að leiða til fækkunar starfa, sem þar af leiðandi skilar sér í lægra útsvari til sveitarfélaga, þá verður að telja að slík ákvörðun sé ávallt byggð á viðskiptalegum grunni, en ekki vegna breytinga á viðmiði við útreikning reiknistofns að baki veiðigjaldi.“

Það fer lítið fyrir því að útskýra hvernig ríkisstjórnin útskýrir að slík hækkun sé ekki partur af viðskiptalegum grunni né heldur er því sé svarað að ef það er ekki á viðskiptalegum grunni á hvaða grunni þá. Staðreyndin er einfaldlega sú að tvöföldun á veiðigjaldi mun að sjálfsögðu að endingu leiða til þess að verð á hráefni til fiskvinnslu mun hækka með ófyrirsjáanlegum afleiðingum — eða fyrirsjáanlegum afleiðingum. Sveitarstjórnarfólk víða um land bókaði enda margt gegn þessari hækkun á veiðigjöldum. Öll kvörtuðu einnig yfir engu samráði af hálfu atvinnuvegaráðuneytis, en í 129. gr. sveitarstjórnarlaga segir að ráðherrar verði að láta meta áhrif stjórnarfrumvarpa á fjárhag sveitarfélaga áður en þau eru afgreidd úr ríkisstjórn til framlagningar á Alþingi.

En forseti. Ræðum líka um hina stórkostlegu framþróun í nýsköpun og tækni sem sjávarútvegurinn á svo mikið í. Það hafa vissulega verið rædd hér hin stærri fyrirtæki eins og Marel og Kerecis, enda ærin ástæða til. En stöldrum aðeins við hina smærri. Í gær fékk ég tölvupóst frá einum aðila sem bar titilinn „Áhyggjur frumkvöðuls í nýsköpun í sjávarútvegi vegna fyrirhugaðra hækkana veiðigjalda“. Þar kom m.a. fram, með leyfi forseta — enda fannst mér þetta gagnort og sýna vel samhengi hlutanna:

„Sprotafyrirtæki sem stunda nýsköpunarstarf þurfa fjármagn til að stækka en þau þurfa meira en bara það. Þau þurfa einnig gott og traust aðgengi að hráefni, vilja til breyttrar meðhöndlunar á hráefnum í frumvinnslu, mögulega tækjabúnað auk áðurnefnds hvata til nýsköpunar hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum. Besta leiðin fyrir sprotafyrirtæki til að nálgast þetta allt er að sjávarútvegsfyrirtækin hafi getu til að fjárfesta í þeim. Það myndar hvata til nýsköpunar hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum og tryggir nýsköpunarfyrirtækjunum aðgengi að góðu hráefni. Í téðu frumvarpi er verið að slíta þessa taug. Geta sjávarútvegsfyrirtækjanna til að fjárfesta í nýsköpun verður skert verulega og þar með er líklegt að hvatinn hjá þeim til nýsköpunar minnki verulega. Þegar horft er á afkomu sjávarútvegsins á Íslandi sést að arðgreiðsluhlutfall í greininni er lægra en almennt er í íslensku atvinnulífi og arðsemi eigin fjár um 13%, sem er ekki meira en almennt gengur og gerist í íslensku atvinnulífi. Sjávarútvegurinn hefur mikla þörf fyrir að fjárfesta í búnaði, til að mynda skipum, vinnslubúnaði og húsnæði. Slík fjárfesting er tekin af hagnaði fyrirtækjanna og ólíklegt er að fyrirtækin hætti slíkri fjárfestingu. Einnig er ólíklegt að eigendur sjávarútvegsfyrirtækjanna, til að mynda lífeyrissjóðir, sætti sig við minni arðgreiðslu. Þá er eina leiðin fyrir sjávarútvegsfyrirtækin til að standa undir hækkun veiðigjalds að skera niður eða hætta alfarið að fjárfesta í nýsköpun. Þá er taugin milli sjávarútvegsfyrirtækjanna og nýsköpunarfyrirtækjanna slitin.“

Forseti. Því miður ber þetta frumvarp með sér einkar einfeldningslega framsetningu fyrir utan það að vera hroðvirknislega unnið. Þetta hefur ekkert með raunverulega velferð samfélagsins að gera til lengri tíma. Þetta ber þess öll merki að aðeins sé verið að hugsa um að haka hratt í box og ná tölum inn í excel-skjal ársins í ár. Frasastjórnmál hafa því miður einkennt orðræðu stjórnarliða. Svona eigum við einfaldlega ekki að vinna hlutina, frú forseti, sérstaklega ekki þegar blikur eru á lofti. Við eigum ekki að taka áhættu á því að kippa fótunum undan mikilvægum útflutningsstöðum með einfaldaða frasa að vopni.

Saga sjávarútvegs á Íslandi er löng og flókin. Það eru skiptar skoðanir um hana. En sjávarútvegur hefur reynst Íslandi vel. Hann er grunnurinn að því samfélagi sem við byggjum í dag. Hann skiptir enn gríðarlega miklu máli fyrir íslenskt hagkerfi. Það var ekki alltaf þannig. Það er ekki náttúrulögmál að sjávarútvegi gangi alltaf vel og að hann verði alltaf sá burðarás í íslensku samfélagi með öllum sínum afleiddu áhrifum sama hvað. Alls ekki.

Sjávarútvegurinn hefur þá stöðu í íslensku samfélagi sem raun ber vitni af því að farsælar og skynsamlegar ákvarðanir hafa verið teknar allt frá níunda áratug síðustu aldar. Það datt ekki af himnum ofan, frú forseti. En nú, því miður, er verið að stefna þeim góðu ákvörðunum síðustu áratuga í hættu. Og þá er ég ekki að tala um einhverja risastóra örfáa aðila, þeir munu eflaust lenda á löppunum eins og yfirleitt. Ég er að tala um samfélagið í heild. Ég er að tala um alla þá mýmörgu aðila, mismunandi aðila úti um allt land, sem eiga allt sitt undir því að þetta heildarsamhengi, með ákveðinn burðarás í íslenskum sjávarútvegi, sem hann hefur staðið undir gagnvart mismunandi öngum samfélagsins í svo mörg ár; að íslenskur sjávarútvegur fái áfram að dafna og blómstra í góðu samlæti við það allt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)