veiðigjald.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir ágæta ræðu. Ég kem líka hingað upp til að minnka áhyggjur hennar vegna þess að hún hafði miklar áhyggjur af því að þessi hækkun, sem er talsverð, er smávægileg miðað við þau tilboð sem standa á borðinu hjá hæstv. sjávarútvegsráðherra. Það er einfaldlega svo að það liggur fyrir tilboð frá Landssambandi smábátaeigenda um að greiða 100 kr. fyrir kílóið, veiðiheimildina. Þó svo að menn séu að hækka gjaldið úr 27 kr. eins og það er núna þá slagar það ekkert upp í það tilboð sem liggur á borðinu frá Landssambandi smábátaeigenda. Ég tel því að þetta séu einfaldlega óþarfaáhyggjur.
Ég vil því spyrja hv. þingmann hvort hún telji að það sé e.t.v. rétt að hæstv. ráðherra skoði það að taka því tilboði sem liggur á borðinu, og það sem meira er út frá þjóðarhag. Það er staðreynd að dagróðrabátar skila öllu jafna verðmætari fiski á land en fæst fyrir vikugamlan togarafisk. Það sést best á því að ef það eru stæður með vikugömlum fiski úr togurum við hliðina á dagróðrafiski og línu- eða handfærafiski þá fer handfærafiskurinn, dagróðrafiskurinn, alla jafna á hærra verði. Telur hv. þingmaður að rétt sé að skoða það tilboð sem liggur á borðinu frá Landssambandi smábátaeigenda, eða hver er afstaða hennar til þess?