156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:36]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla bara að vera heiðarleg. Miðað við það frumvarp sem hér liggur fyrir er þetta ekki partur af umræðunni. Ég ætla að svara því til að ég treysti mér bara ekki til að hafa skoðun á þessari spurningu hv. þingmanns hér og nú.