veiðigjald.
Frú forseti. Ég tel að það sé fullt tilefni fyrir Sjálfstæðisflokkinn að skoða það tilboð sem er á borðinu. Það kemur í raun á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki hafa kynnt sér það að það séu aðilar í samfélaginu tilbúnir að greiða þrefalt, jafnvel fjórfalt, hærra gjald en verið er að tala um að greitt verði nú. Ég skora á Sjálfstæðisflokkinn að fara í örlitla endurmenntun þegar komið er að sjávarútvegsmálunum og mynda sér sjálfstæðu skoðun en ekki að vera hér ómerkileg framlenging af ákveðnum hagsmunasamtökum. Málflutningurinn litast af því að það er lítið gert með þjóðarhag heldur einfaldlega verið að reka erindi örfárra aðila.
Það kemur verulega á óvart að hv. þingmaður, sem er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, hafi ekki heyrt af því að hér séu aðilar tilbúnir að greiða miklum mun hærra gjald en verið er að tala um að leggja á nú. Það fer ekki saman að vera í sömu andrá að tala um að þetta gangi frá útveginum og fari illa með þjóðarhag.