156. löggjafarþing — 35. fundur, 6. maí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Forseti. Öðru sinni þakka ég hv. þingmanni fyrir andsvarið. Öðru sinni nefni ég það að hér er undir það frumvarp atvinnuvegaráðherra sem við erum að ræða. Ég treysti því að aðrir angar sjávarútvegsmála hér á landi verði ræddir í þeirri hv. nefnd sem hv. þingmaður fer fyrir. Og ég treysti því að sú umræða verði góð.