156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:39]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil fyrst þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir ræðuna sem hún flutti. Það er eitt sem hefur verið mér ofarlega í huga varðandi þetta frumvarp og það er hve það er illa umbúið. Það er flausturslega unnið og það virðist vera að í öðru málinu í röð, þ.e. á eftir jöfnunarsjóðsfrumvarpinu, sé ríkisstjórninni að takast, eða að hún sé alla vega að reyna, að fá sveitarfélögin í landinu upp á móti sér. Það kemur fram í umsögnum sveitarfélaganna, sem hafa lagt fram umsagnir um þetta mál, að þau hafa miklar áhyggjur af sinni stöðu, sveitarfélög á landsbyggðinni sem eru háð því að 30%–50% og jafnvel meira af útsvarstekjum þeirra komi beint frá sjávarútvegi.

Nú er það þannig að ríkisstjórnin vill greinilega keyra þetta mál í gegn á örfáum vikum; grundvallarbreytingu sem verið er að gera á gjaldtöku fyrir veiðar á Íslandi. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sjái þetta svipuðum augum og ég. Ég er t.d. búinn að sjá í tveimur umsögnum sem ég renndi lauslega yfir að þar er sagt að þessi málatilbúnaður fari í bága við 129. gr. laga um sveitarstjórnarmál. Mig langar til að heyra afstöðu hv. þingmanns til þessa.