156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:44]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Já, og aftur tek ég undir það að þessi Noregstenging er í rauninni með miklum ólíkindum og er t.d. eitt af því sem var varað við í minnisblöðum sérfræðings við vinnslu málsins gagnvart ríkisstjórninni en var einhverra hluta vegna virt að vettugi. Það er eiginlega með hreinum ólíkindum að þessi punktstaða virðist svolítið tekin „af því bara“; það fer ekki mikið fyrir rökstuðningnum. Af hverju er ekki bara miðað við Kanada eða eitthvað annað? Það er gert lítið úr því, og ég hef sama skilning og hv. þingmaður, að makríllinn er bara dýrari vara og þú færð meiri peninga fyrir hann í Noregi. Hann er feitari, það tekur skemmri tíma að sækja hann, hann er styttra í burtu o.s.frv., þannig að hér er ekki um sambærilega vöru að ræða. Ég hef ekki heyrt frá hæstv. ríkisstjórn eða hæstv. ráðherra neinar útskýringar á því af hverju miðað var nákvæmlega við þetta verð en ekki eitthvað annað; eða bara að við miðum okkur við okkar heimahaga þar sem samhengi hlutanna er sem er svo mikilvægt.