veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir sína afbragðsgóðu ræðu þótt ég sé, eðli málsins samkvæmt, ekki sammála öllu sem þar kom fram. Ég glími við það vandamál að vera með frekar mikið gullfiskaminni. Ég vona að ég sé að fara rétt með að hv. þingmaður hafi talað um að það væri frekar mikið af frösum í umræðunni og talað um að vilja stefna að sanngjörnu veiðigjaldi. Ég ætla ekkert að neita því að það eru sumir sem gera það. Ég forðast það sjálfur af því að ég trúi því að það sé ekki til neitt sem er algjörlega sanngjarnt eða algjörlega fullkomið kerfi, hvort sem það er veiðigjald eða skattheimta. En sum kerfi eru sanngjarnari en önnur og ég trúi að það sé sanngjarnara að miða við markaðsverð, verð sem myndast með markaðslögmálunum, en eitthvað sem verður til við viðskipti milli tengdra aðila og ákvarðað af ríkisstofnuninni Verðlagsstofu skiptaverðs.
Ég vil spyrja hv. þingmann, af því að hún sagðist sjálf styðja sanngjarnt veiðigjald, hvað hún eigi við með sanngjörnu veiðigjaldi, hvort hún telji kerfið eins og það er í dag vera sanngjarnara en það sem hér er boðað. Ég vil einnig spyrja, af því að hv. þingmaður talaði um að hér væri einungis verið að reyna að ná endum saman í excel-skjali — ég er ekki sammála af því að allir þeir þrír flokkar sem mynda þessa ríkisstjórn hafa talað fyrir breytingum á sjávarútvegskerfinu, bæði þegar vel hefur árað og ver; það er því ekki raunin hér, vil ég meina. Ég vil spyrja hver afstaða hv. þingmanns hafi verið á seinasta kjörtímabili þegar boðuð var hækkun á veiðigjöldum og hvort það hafi verið eitthvað annað en trikk til að ná saman endum í excel-skjölum.