156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:48]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil kannski bara byrja á lokaspurningunni varðandi síðasta kjörtímabil. Ég held að allir á Íslandi viti að þar stóðu saman að ríkisstjórn flokkar með um margt ólíka sýn á það hvernig best væri að haga hlutum í okkar ágæta samfélagi. Því er einfalt að svara að umrætt frumvarp, sem ég heyri mikið talað um hér í þingsal, mjög mikið miðað við að það frumvarp fór aldrei úr samráðsgátt viðkomandi ráðherra, fór hvorki fyrir ríkisstjórn, hvað þá inn í þingflokka, hvað þá úr þingflokkunum, hvað það í þinglega meðferð, hvað þá hingað inn í þingsal. Mér þykir mikið gert úr þessu meinta frumvarpi sem við í Sjálfstæðisflokknum eigum að hafa lagt fram en gerðum bara alls ekki. Því er fljótsvarað.

Varðandi það hvað er sanngjarnt, þá er það frábær spurning. Þetta er verkefni okkar alla daga: Hvað er sanngjarnt? Það er í rauninni ekki til neitt eitt svar við því ef við förum á heimspekilegar nótur. Reglur eru mannanna verk og eru aldrei hafnar yfir vafa. Við eigum að gangast upp í því að vera alltaf að finna betri og betri lendingu með hvaðeina sem við gerum hér í þágu samfélagsins en þó þannig að við verðum líka að passa upp á ákveðinn fyrirsjáanleika og ákveðinn rökstuðning. Varðandi rökstuðninginn og fyrirsjáanleikann fær frumvarpið hreinlega falleinkunn að mínu viti. Og hvað er það sanngjarnt að miða við eitthvert norskt verð, eins og ég hef áður farið yfir, á vöru sem er bæði dýrari, einfaldara að sækja hana o.s.frv.? Er það sanngjarnara? Á að miða fasteignaskatta á Íslandi við fasteignaverð á Manhattan? Er þetta eitthvað sanngjarnara en það?