veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það var ekki svo að frumvarpið hafi komið inn í þingsal í þinglega meðferð en ég veit ekki betur en að gert hafi verið ráð fyrir því í fjármálaáætlun að veiðigjöld yrðu hækkuð, og það var Sjálfstæðisflokkurinn sem hélt á fjármálaráðuneytinu mestallt seinasta kjörtímabil. Og varðandi það hvað er sanngjarnt og hvað ekki þá tek ég undir það með hv. þingmanni að við erum alltaf að stefna í átt að einhverju sem er sanngjarnara og betra og skilvirkara. Ef við værum ekki að miða við norsku verðin í þessu og værum bara með þessu frumvarpi að miða veiðigjaldið á bolfiski við íslenskt markaðsverð, myndi hv. þingmaður þá taka undir frumvarpið?