156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:53]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Forseti. Við ræðum hér í dag frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald. Þar er horft til þeirra aflaverðmæta sem lögð eru til grundvallar reiknistofni. Það er mikilvægt að rifja upp af hverju við erum að ræða veiðigjaldið. Hver er tilgangur veiðigjaldsins? Jú, veiðigjaldið er notað til að fjármagna nauðsynlega þjónustu við þessa atvinnugrein. Finnst okkur eðlilegt að samfélagið standi straum af stuðningi við atvinnugreinina? Er ekki miklu eðlilegra að þessi grein standi straum af þeim kostnaði? Þessu til viðbótar er að sjálfsögðu fullkomlega eðlilegt að sjávarútvegurinn greiði samfélaginu sanngjarnt endurgjald fyrir það að þessi sömu fyrirtæki nýti auðlind sem er í eigu þjóðarinnar. Það kemur fram í greinargerð frumvarpsins að kostnaður við utanumhald greinarinnar hafi verið 11 milljarðar á sama tíma og tekjurnar voru 10 milljarðar. Það má spyrja: Er eðlilegt að veiðigjaldið standi ekki undir þessum rekstrarkostnaði? Væri ekki eðlilegt að veiðigjaldið skilaði auknum tekjum sem endurgjaldi fyrir aðgang að þessum mikilvægu auðlindum þjóðarinnar, fyrir aðgang að auðlindum sem þessi fyrirtæki hafa fengið aðgang að en eru eftir sem áður í fullri eigu þjóðarinnar?

Ég vil ítreka, líkt og fram hefur komið í máli margra stjórnarþingmanna, að nú er aðeins verið að leiðrétta þann reiknigrunn sem veiðigjaldið reiknast af. Reikniregla veiðigjaldsins er óbreytt. Þriðjungur af verðmæti afla fer til eigandans og tveir þriðju til þeirra sem fá að nýta auðlindina. Nú er eðlilega verið að tryggja að aflaverðmæti fylgi markaðsverði þeirra verðmæta sem sjómenn þjóðarinnar draga upp úr hafinu. Það er verið að varpa á það ljósi að aflaverðmæti er afar misjafnt þegar horft er til samanburðar á markaði á Íslandi og í Noregi. Já, forseti, verðmæti aflans á Íslandi er minna að mati fyrirtækjanna sem sækja aflann út á haf og landa hér á landi. Á sama tíma er sambærilegur afli verðmætari í Noregi og það geta auðvitað verið ýmsar ástæður fyrir þessu en það hlýtur að vera einsdæmi að fyrirtækjum sé það svo gott sem í sjálfsvald sett að ákveða hvað þau greiða í lögbundin gjöld. Þetta frumvarp tryggir að miðað verði við raunverulegt verðmæti á mörkuðum þar sem eignarhald er aðskilið, þar sem samkeppni er um þann afla sem dreginn er úr sjó.

Frú forseti. Hér er um mikið sanngirnismál fyrir þjóðina að ræða. Hér er einnig um að ræða sanngirnismál fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi, að þau sitji við sama borð. Það er sanngirnismál að þjóðin fái að njóta þeirra náttúruauðlinda sem þjóðin sannarlega á. Í þessum þingsal hefur staða útflutningsfyrirtækja nokkuð verið í umræðu, hvaða áhrif þessi leiðrétting á veiðigjöldum hefur á rekstur fyrirtækjanna. En það er ljóst að eigið fé sjávarútvegsfyrirtækjanna hafði vaxið upp í 449 milljarða í lok árs 2022. Það hafði þá aukist um 150 milljarða kr. á fimm árum þrátt fyrir tugmilljarða króna arðgreiðslur til eigenda og gríðarlega fjárfestingu í greininni.

Ég verð að gera að umræðuefni hér í dag hversu góð vinnubrögð hafa verið viðhöfð í þessu máli. Atvinnuvegaráðherra og starfsfólk ráðuneytisins hefur lagt mikinn metnað í málið, farið í mikla greiningarvinnu þegar frumvarpið var samið, sent það í samráð til almennings og tekið tillit til þeirra athugasemda sem fram hafa komið. Ráðherra hefur gripið til aðgerða til að tryggja hagsmuni minni aðila í atvinnugreininni. Og í hvað er hægt að nýta þessa fjármuni sem ríkið mun afla í gegnum veiðigjaldið? Jú, það hefur komið skýrt fram að þá skuli nýta til að endurreisa innviði samfélagsins. Innviðaskuld í samfélaginu er enda gríðarlega mikil. Í vegakerfinu einu saman er hún áætluð allt að 290 milljarðar kr. eftir aðgerðaleysi síðustu ríkisstjórnar.

Stjórnarandstæðingum hefur orðið tíðrætt um hina svokölluðu norsku leið í umræðum um þetta frumvarp, að hér sé verið að fara einhverja norska leið. Þar enduróma þeir áróður hagsmunasamtaka sem settur hefur verið fram í fokdýrum auglýsingum. Ég viðurkenni að hafa klórað mér töluvert í höfðinu yfir hvað þeir eigi við. Ef við horfum á stöðuna hjá frændum okkar Norðmönnum og hvernig þeir hafa hagað málum þegar kemur að utanumhaldi og regluverki í kringum nýtingu á sinni helstu náttúruauðlind þá er vissulega töluverður munur á. Norðmenn þjóðnýta nefnilega arðinn af nýtingu olíuauðlindarinnar að mestu. Ríkið á um 67% hlut í olíufyrirtækinu Equinor, sem hét áður Statoil, á móti norskum lífeyrissjóðum og einkafjárfestum. Þar er hagnaður af olíuframleiðslu skattlagður með samtals 78% skatti. Afraksturinn er settur í olíusjóð sem í dag er stærsti fjárfestingarsjóðurinn í eigu ríkis í heiminum og í raun einn stærsti fjárfestir sem fyrirfinnst. Okkar helsta auðlind sem er nýtt af einkaaðilum er fiskur og fyrir það leggjum við á veiðigjald sem felur í sér að notendurnir borga einn þriðja af aflaverðmæti til eigandans en halda 67% eftir. Í ofanálag er veiðigjaldið frádráttarbært frá tekjuskattinum. Er það vilji stjórnarandstöðunnar að fara norsku leiðina í þessum málum, að notendur auðlindarinnar séu látnir borga 78% skatt fyrir aðgengið?

Virðulegur forseti. Vandaðar greiningar sem unnar hafa verið í tengslum við gerð þessa frumvarps sýna svart á hvítu að það eru stærstu fyrirtækin í sjávarútvegi sem munu greiða uppistöðuna af þeim veiðigjöldum sem munu leggjast á eftir leiðréttinguna. Þær sýna að tveir þriðju hlutar allra veiðigjalda muni greiðast af tíu stærstu fyrirtækjunum og yfirlit yfir þau sýnir að flest tengjast innbyrðis, eru hluti af sömu blokkunum. Litlum og meðalstórum útgerðum verður hlíft með ríflegri hækkun á frítekjumarki. Það var hlustað á áhyggjur sem voru settar fram vegna þessa á meðan frumvarpið var í samráðsgátt. Þeim var mætt. Nú er áætlað að veiðigjöldin verði 17,3 milljarðar á næsta ári. Það er rúmlega 6 milljörðum kr. meira en þau myndu hækka í óbreyttu kerfi. Á það má minna að síðasta ríkisstjórn boðaði áform um að hækka veiðigjöld. Sú hækkun var óútfærð og ég man ekki til þess, virðulegi forseti, að þáverandi stjórnarflokkar, sem nú sitja í andstöðu, hafi öskrað sig hása og kallað það skattahækkun. Ég man ekki eftir því að þeir hafi talað út í eitt um að byggðir myndu leggjast af, um að afli yrði fluttur óunninn úr landi eða að nýsköpun og fjárfestingu í sjávarútvegi væri þar með að mestu lokið.

Virðulegur forseti. Hér fer ekki saman hljóð og mynd. Það liggur fyrir að það hefur verið ákall um það áratugum saman að laga skekkju sem er í skiptingunni á arðinum af nýtingu þjóðarauðlindar milli þeirra sem fá að nýta hana og þeirra sem eiga hana. Það liggur fyrir að stærstu fyrirtæki landsins í sjávarútvegi geta vel staðið undir því að borga meira. Það liggur fyrir að það er ekkert í þessu frumvarpi sem mun leiða af sér þann harmaheim sem stjórnarandstaðan boðar. Hér er einfaldlega ríkisstjórn með mjög sterkt lýðræðislegt umboð að standa við það sem hún sagðist ætla að gera. Það er sanngjarnt, það er réttlátt og því ber að fagna.